Hef lesið minn síðasta fréttatíma
„Að skrifa pistla,“ svarar Logi Bergmann Eiðsson spurður hvers hann sakni mest úr fjölmiðlum en hann var í tæp 40 ár í föstu starfi sem blaða- og fréttamaður en býr nú í Bandaríkjunum og sinnir ýmsum verkefnum.
„Ég var pistlahöfundur í þessu blaði um tíma og hafði ofboðslega gaman af því. Það er hægt að leggja út af svo mörgu skemmtilegu, ekki síst málefnum líðandi stundar. En ég sakna ekki fréttanna. Ég hef lesið minn síðasta fréttatíma.“
Logi vann sem blaðamaður á Þjóðviljanum og Morgunblaðinu, áður en hann varð fréttamaður og fréttaþulur á RÚV og síðar Stöð 2, þar sem hann kom einnig að dagskrárgerð af ýmsu tagi. Nú síðast vann hann á útvarpsstöðinni K100 sem Árvakur rekur.
„Það breyttist ótrúlega margt á þessum tíma. Í byrjun fékk ég að upplifa blómatíma flokksblaðanna og síðar tíma þar sem mikill metnaður og samkeppni ríkti milli sjónvarpsstöðvanna, ekki síst á sviði frétta.“
Nú heyrir sú rimma sögunni til enda bara einn fréttatími eftir í sjónvarpi, á RÚV. „Það er dapurleg þróun og slæmt fyrir alla að vera bara með einn fréttatíma í sjónvarpi. Samkeppnin dregur fram það besta í okkur – án hennar er hætta á því að menn verði latir og værukærir. Ritstýrðir fjölmiðlar eiga almennt undir högg að sækja og löngu liðin tíð að blöðin geti beðið með skúbbin til morguns eða sjónvarpið með frétt til klukkan sjö um kvöldið. Það þýðir ekki að bíða með neitt lengur.“
Nánar er rætt við Loga í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗