Bjarni var á torginu þar sem skotárásin í Kraká var framin - „Hún hafði orðið fyrir skoti rétt um 50 metra frá okkur“

Jakob Snævar Ólafsson

Laugardaginn 7. nóvember 2026 16:58

Bjarni Vestmann. Mynd: Atlantshafsbandalagið.

Bjarni Vestmann sendifulltrúi sem starfar við fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu, NATO, í Brussel var staddur ásamt eiginkonu sinni í stuttu ferðalagi í Kraká í Póllandi þegar skotárás var framin við torgið þar sem þau voru stödd. Bjarni segir að þau hjónin hafi flúið inn á veitingastaðinn, þar sem þau höfðu sest að snæðingi, utandyra. Kona sem hafi verið um 50 metra frá þeim hjónum hafi verið skotin til bana. Hann segir að þeim hjónum sé brugðið og þótt hann hafi séð ýmislegt í sínum störfum í utanríkisþjónustunni sé það ekkert í líkingu við þetta.

Fram kemur í fréttum erlendra fjölmiðla að fimm séu látnir og fjöldi manna séu særðir eftir árásina, sem framin var við aðaltorg borgarinnar. Lögregla náði að særa árásarmanninn og hann var fluttur á sjúkrahús en þegar þessi orð eru rituð liggja litlar upplýsingar fyrir um hann og hvað honum gekk til. Fram kemur í fréttum þó að hann hafi verið á bíl og klæddur í hernaðarlegan klæðnað.

Bjarni Vestmann (þriðji frá vinstri) ásamt samstarfsfólki sínu við Fastanefnd Íslands hjá NATO, ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Mynd: utanríkisráðuneytið.

Bjarni greinir frá því á Facebook að þau hjónin hafi verið á vettvangi og heyrt skothvellina en að þau séu bæði óhult.

Bjarni var fús til að ræða málið nánar við DV. Hann lýsir atburðarásinni þannig:

„Við vorum bara rétt nýkomin í nokkurra daga ferð til Krakár ég og Rakel konan mín þegar við ákváðum að fara í göngutúr. Bara setjast strax á veitingahús og fá okkur einhverja létta hressingu, við aðaltorgið ... markaðstorgið gamla. Eftir smástund kveða við miklir hvellir. Eitt augnablik hugsaði ég þetta eru örugglega flugeldar en svo hugsaði ég nei þetta er allt of hratt og reglulegt. Í þann mund þá ruku allir upp og inn á veitingahúsin.“

50 metrar

Þau hjónin höfðu sest til borðs á útisvæði veitingahússins. Bjarni heldur frásögn sinni áfram:

„Svo eftir smástund fór ég út þegar ég sá að það var verið að stumra yfir einhverjum þarna. Þá var verið að stumra yfir konu það var því miður ekki hægt að bjarga lífi hennar. Hún hafði orðið fyrir skoti rétt um 50 metra frá okkur. Síðan fóru lögreglubílar að streyma á svæðið og út um allt. Svo koma sjúkrabílar náttúrulega.“

Bjarni segir að árásin hafi virst einkum hafa beinst að verslun fatabúðakeðjunnar Zöru sem er við torgið. Í versluninni hafi all nokkrir særst eða jafnvel látist. Ein manneskja líklega kona hafi legið látin í götunni fyrir utan verslunina og breitt hafi verið yfir hana eins og áðurnefnda konu sem skotin var um 50 metra frá þeim hjónum. Stuttu seinna hafi torgið verið rýmt og því lokað. Lítið hafi þá verið annað að gera en að halda brott en Bjarni segir þau hjónin vera að átta sig á því sem þau hafi upplifað.

Áfallið

Bjarni svarar því aðspurður neitandi að lögreglan í Kraká hafi rætt við þau hjónin. Rætt hafi verið starfsfólk verslana og veitingastaða á svæðinu. Hann segir að ekki hafi verið boðið upp á áfallahjálp og bendir á að mikill mannfjöldi hafi verið á svæðinu:

„Ég held að það væri svolítið óvinnandi vegur.“

Bjarni segir að þau hjónin hafi aldrei upplifað neitt í líkingu við þetta þótt hann hafi vissulega farið víða og séð og upplifað margt í störfum sínum fyrir utanríkisráðuneytið.

Bjarni svarar því játandi að þeim hjónum sé brugðið en segir þau ekki hafa orðið hrædd:

„Maður hafði bara ekki tíma til þess að verða hræddur. Það þustu allir inn á veitingastaðinn. Þjónunum var sagt hvað væri að gerast svo við gætum þess vegna læst þegar þyrfti á að halda. Hvort sem það gerði nú nokkuð gagn eða ekki.“

Hann segir að sumir sem hafi flúið undan skothríðinni hafi hlaupið þjóna, sem voru að bera fram veitingar, um koll. Fljótlega hafi þó fólk farið að sýna stillingu. Þegar svona eigi sér stað fari adrenalínið af stað en áfallið muni líklega hjá að minnsta kosti einhverjum koma síðar, þegar allt er yfirstaðið.

Bjarni bætir við að lokum:

„Það er verst að horfa upp á það hvernig líf fólks hefur verið lagt í rúst.“

Sumir séu látnir og aðrir sárir og býði þess hugsanlega aldrei bætur. Hann segir að þau hjónin ætli að reyna að gera það besta sem hægt sé úr ferðinni:

„Kraká er falleg borg og fólkið er afskaplega vinalegt hérna.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅