Pútín heldur stórri lygi lifandi

Pressan

Laugardaginn 7. nóvember 2026 17:00

Vladimír Pútín Rússlandsforseti. Mynd/Getty

Nýjar tölur sýna vel hvernig lygar Rússa um stöðuna á vígvellinum í Úkraínu eru en þessar lygar geta valdið vandræðum.

Ef stríðið myndi vera fryst á morgun miðað við núverandi víglínur, þá myndu Pútín og hershöfðingjar hans standa frammi fyrir vanda við að útskýra 6.500 ferkílómetra.

Þetta er stærðarmunurinn á þeim kortum, sem rússnesk yfirvöld birta í innlendum fjölmiðlum, um víglínuna og landvinninga og raunveruleikanum sjálfum.

Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) fjallaði nýlega um þetta og benti á að rússnesk yfirvöld haldi því fram að rússneski herinn hafi lagt 6.500 ferkílómetra úkraínsks lands undir sig síðan í byrjun árs. En raunverulegir landvinningar þeirra eru að sögn hugveitunnar 73 ferkílómetrar.

OSINT-greinandinn Clement Molin tekur undir þessa greiningu hugveitunnar og segir að sjá megi muninn þegar borin eru saman kort, byggð á upplýsingum frá rússneska varnarmálaráðuneytinu, sem rússneski ríkisfjölmiðillinn Ria Novosti birti, og kort frá úkraínsku upplýsingasíðunni Deepstate, sem hefur tengsl við úkraínska herinn.

Deepstate og ISW byggja kort sín á upplýsingum sem eru öllum aðgengilegar og ljósmyndum, myndbandsupptökum og gervihnattarmyndum af vígvellinum.

Skýrasta dæmið um lygar Rússa er frá víglínunni við Lyman í Donetsk-héraðinu. Þar hefur úkraínski herinn að undanförnu verið með aðgerðina Vivaldi í gangi. Hefur aðgerðin skilað 270 ferkílómetrum lands aftur í hendur Úkraínumanna og hefur þessi tala verið staðfest af óháðum aðilum.

En miðað við rússnesk kort frá í október, þá átti þessi aðgerð sér aldrei stað og raunar er lygi Rússa svo stór að þeir staðhæfa að þeir hafi bæinn Lyman á sínu valdi en það höfðu þeir ekki einu sinni áður en aðgerðin hófst.

Hið hugsanlega vandamál

Þessi, nánast draumórakenndu kort Rússa, geta valdið vanda þegar kemur að því að semja um frið.

Úkraínumenn hafa í hálft annað ár verið reiðubúnir til að stöðva stríðið miðað við núverandi víglínur en þessu hafa Rússar hafnað.

En hvað sem öðru líður þá væri erfitt að finna út hvar víglínan liggur nákvæmlega ef til vopnahlés kemur. Ástæðan er að mörg „grá svæði“ eru við hana, frekar en skýr skil á milli stríðsaðilanna.

Ef Rússar ákveða að halda fast við lygina á landakortum sínum, þá getur orðið mjög tímafrekt, erfitt og jafnvel ómögulegt að ná samkomulagi um fyrsta skrefið af þeim mörgu sem þarf að taka til að hægt sé að koma á vopnahléi.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅