Risapöndurnar komnar til Bandríkjanna
Tvær risapöndur hafa komið sér vel fyrir í Dýragarðinum í Atlanta.
Þær heita Ping Ping og Fu Shuang en á myndskeiðinu má sjá þær gæða sér á bambus fyrir augum gesta dýragarðsins.
Pöndurnar eru fengnar að láni frá Kína og til tíu ára. Gestir dýragarðsins gátu séð þær í fyrsta sinn í gær.
Risapöndur hafa um árabil verið leið fyrir Kínverja til að liðka fyrir alþjóðasamskiptum.
Heimkynni bjarnartegundarinnar eru í austanverðri Asíu. Pöndur eru fágæt dýr og voru, fyrir árið 2016, taldar vera í útrýmingarhættu.
Í dag er stofninn talinn vera viðkvæmur en ekki í útrýmingarhættu lengur. Um 1800 pöndur eru í villtri náttúru.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
