ÍBV vann öruggan sigur
ÍBV vann öruggan sigur, 27:22 gegn Stjörnunni í Vestmannaeyjum í úrvalsdeild kvenna í handbolta í dag.
ÍBV er í öðru sæti með 14 stig og heldur áfram að elta Hauka sem verma toppsæti deildarinnar með fullt hús stiga. Stjarnan situr enn sem fastast á botni deildarinnar með tvö stig eftir átta leiki.
Eyjakonur skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins og voru með 13:7-forskot í hálfleik. Seinni hálfleikurinn reyndist jafnari en Stjörnunni tókst ekki að saxa á forskot ÍBV sem sigldi sigrinum örugglega heim.
Sandra Erlingsdóttir átti frábæran leik en hún var markahæst með 16 mörk úr 18 skotum, þar af átta af vítalínunni. Inga Maria Roysdóttir var markahæst í liði Stjörnunnar en hún gerði 9 mörk.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗