Arndís og Hulda Sigrún héldu partý og buðu öllum
Arndís Þórarinsdóttir, Estelle Pollaert og Hulda Sigrún Bjarnadóttir í útgáfuhófi á Hvalasafninu á miðvikudaginn. Arndís og Hulda Sigrún skrifuðu barnabókina Babb og Estelle myndskreytti hana. mbl.is/Eyþór
Rithöfundarnir Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir fögnuðu útgáfu barnabókarinnar Babb með pompi og prakt á Hvalasafninu á miðvikudaginn. Þær buðu öllum að koma og fagna með sér og aðgangur að safninu var ókeypis meðan á hófinu stóð.
Estelle Pollaert myndskreytti bókina sem er komin út hjá Forlaginu. Hvalasafnið hefði verið að skapi Helgu Sjafnar, tólf ára aðalpersónu bókarinnar. Hún hefur slíkan áhuga á hvölum að hún skrópar í skólanum til að fara í hvalaskoðun með afa sínum.
Babb er þriðja barnabókin sem Arndís og Hulda Sigrún skrifa saman. Þær hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka fyrir Blokkina á heimsenda árið 2020 og fylgdu henni eftir með Mömmuskiptum þremur árum síðar.
Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins og Þórarinn V. Þórarinsson lögmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins. mbl.is/Eyþór
Torfi Kristbergsson, Matthilidur Þórisdóttir, Karólína Torfadóttir, Karlotta Guðlaugsdóttir og Elínóra Þórisdóttir. mbl.is/Eyþór
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗













