Ragnheiður missti heilsuna á vinnustaðnum en enginn hefur þurft að sæta ábyrgð á því

Ragnheiður Sigurðardóttir viðskiptafræðingur hefur verið óvinnufær í nærri áratug eftir að mygla greindist í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi, en fyrirtækið sem hún starfaði hjá var að aðstöðu í húsinu. Myglan hafði mjög alvarleg áhrif á heilsu Ragnheiðar en hins vegar hefur enginn aðili þurft að axla ábyrgð gagnvart henni og Ragnheiður spyr hver staða einstaklinga sem missa heilsuna í vinnunni sé á Íslandi.

Ragnheiður segir sögu sína í aðsendri grein á Eyjunni.

Ragnheiður segir að hún hafi á árunum 2016–2017 starfað í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 sem starfsmaður DK Hugbúnaðar ehf. Þar hafi mygla og rakaskemmdir greinst. Hún hafi veikst í kjölfarið og frá árinu 2018 verið óvinnufær.

Ragnheiður lýsir margvíslegum einkennum. Hún þolir illa lykt, efni, raka og myglu, ákveðna fæðu og fjölmörg áreiti í umhverfinu. Ljós, hávaði, kuldi, hreyfing og jafnvel venjuleg dagleg áreynsla getur haft mikil áhrif á líðan hennar.

Þar að auki segist Ragnheiður hafa misst röddina til frambúðar, glíma við dagleg meltingarvandamál, verki, höfuðverk, svima, máttleysi og mikla vanlíðan. Stundum missi hún kraft í útlimum, detti og eigi erfitt með að halda einbeitingu.

Greining

Ragnheiður segist hafa verið greind með sjúkdóminn ME en samkvæmt Heilsuveru er ME (e. myalgic mncephalomyelitis) taugaónæmissjúkdómur sem veldur bólgum í heila og mænu með vöðvaverkjum. Sjúkdómurinn hafi áhrif á mörg líffærakerfi. Helsta einkenni hans sé yfirþyrmandi þreyta eða örmögnun en orsök sjúkdómsins sé óþekkt.

Ragnheiður hefur einnig verið greind með POTS sem samkvæmt Heilsuveru er heilkenni sem veldur aukinni hjartsláttartíðni vegna stöðubreytingar (e. Postural orthostatic tachycardia syndrome) en þá eykst hjartsláttartíðni við það að setjast eða standa upp.

Hún hefur einnig verið greind með myglutengd veikindi.

Veikindin hafa skert lífsgæði Ragnheiðar verulega. Hún getur lítið gert og lítið farið og þarf oft að halda sig heima eða í rúminu.

Engin ábyrgð

Ragnheiður rekur því næst gang máls hennar í dómskerfinu. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að hún ætti rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu vinnuveitanda síns hjá VÍS, vegna heilsutjóns síns. Orkuveita Reykjavíkur var hins vegar sýknuð af bótakröfu hennar.

Landsréttur sýknaði hins vegar VÍS og DK hugbúnað og staðfesti sýknu Orkuveitunnar.

Ragnheiður segir að Landsréttur hafi talið að hún hafi sannarlega orðið fyrir varanlegu heilsutjóni vegna veru sinnar í húsnæðinu en meta þyrfti háttsemi fyrirtækjanna út frá þeirri þekkingu sem hafi verið til staðar á þeim tíma sem myglan greindist:

„Niðurstaðan varð sú að ekki hefði verið sýnt fram á saknæma háttsemi fyrirtækjanna. Heldur þekkingarleysi! Ég virði að dómstólar þurfi að leggja lagaleg viðmið til grundvallar niðurstöðum sínum. En það breytir ekki þeirri staðreynd að ég sit eftir með varanlegt heilsutjón og líf sem verður aldrei aftur eins.“

Einstaklingur gegn fyrirtækjum

Ragnheiður segir ljóst að við aðstæður eins og þessar standi einstaklingur í hennar stöðu höllum fæti gagnvart fjárhagslega sterkum fyrirtækjum:

„Hvernig á einstaklingur sem hefur misst heilsuna að hafa úthald til að berjast árum saman fyrir rétti sínum? Hvernig tryggjum við að fjárhagslegur og faglegur styrkur mótaðila ráði ekki úrslitum um það hvort einstaklingur geti haldið baráttunni áfram? Ég tel að þetta séu spurningar sem samfélagið þurfi að taka alvarlega.“

Hún furðar sig á því að Hæstiréttur hafi hafnað því að taka mál hennar fyrir í ljósi þess að:

„Mál mitt snýst ekki aðeins um mig. Það snýst um öryggi á vinnustöðum, skyldur atvinnurekenda og rétt fólks til þess að geta treyst því að heilsu þess sé ekki stefnt í hættu við það eitt að mæta til vinnu.“

Ragnheiður segist ekki eingöngu hafa haft sitt mál í huga við ritun greinarinnar:

„Ég tel að samfélagið þurfi að ræða hvernig við verndum einstaklinga á vinnustöðum, hvernig við bregðumst við þegar grunur vaknar um heilsuspillandi aðstæður og hvernig tryggt er að einstaklingar geti sótt rétt sinn án þess að þurfa að leggja síðustu krafta sína í langa og erfiða baráttu. Enginn ætti að þurfa að velja á milli þess að mæta til vinnu og þess að vernda heilsu sína.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅