Lýsa yfir þungum áhyggjum af aðbúnaði svína
Iðnaðarmenn í matvælageiranum lýsa yfir þungum áhyggjum af myndefni og fréttaflutningi af aðbúnaði svína hjá Stjörnugrís.
MATVÍS greinir frá þessu í tilkynningu.
Félagið segist mótmæla harðlega allri illri meðferð á dýrum og kallar eftir því að aðstæður þeirra verði rannsakaðar til hlítar og brugðist verði tafarlaust við því sem úrbóta þarfnast.
„Virðing fyrir dýrum og velferð þeirra er grundvallaratriði í ábyrgri matvælaframleiðslu. Fyrir kjötiðnaðarmenn er fagmennska í greininni nátengd því að vel sé farið með dýr á öllum stigum framleiðslunnar. Óviðunandi aðbúnaður og meðferð dýra eiga þar ekkert erindi og grafa undan trausti almennings á greininni allri.“
„Það nægir ekki að eftirlit fari fram“
Kallað er eftir því að eftirlitsaðilar hafi nægilegt fjármagn, mannafla og úrræði til að sinna hlutverki sínu, fylgja athugasemdum eftir og knýja fram úrbætur.
Félagið bendir á frásagnir fyrrverandi eftirlitsdýralæknis sem hafi lýst endurteknum athugasemdum sínum án fullnægjandi úrbóta. Þetta kalli á sérstaka skoðun.
„Það nægir ekki að eftirlit fari fram; tryggja verður að athugasemdum sé fylgt eftir og úr annmörkum bætt. Mikilvægt er að rannsókn á málinu leiði í ljós hvernig aðbúnaði og umönnun dýranna hefur verið háttað.“
Ábyrgð á viðunandi aðbúnaði og starfsháttum segir MATVÍS að hvíli á stjórnendum og rekstraraðilum.
„Dýravelferð verður að vera í fyrirrúmi í íslenskri matvælaframleiðslu. Neytendur og fagfólk eiga að geta treyst því að þeirri kröfu sé fylgt eftir í verki.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗