Þórdís Hrönn til Breiðabliks í þriðja sinn

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er komin til Breiðabliks.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er komin til Breiðabliks. Ljósmynd/Breiðablik

Knattspyrnukonan Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er gengin í raðir Íslandsmeistara Breiðabliks á nýjan leik.

Þetta tilkynnti félagið í dag en Þórdís kemur til Breiðabliks frá Víkingi R., sem féll úr Bestu deildinni á síðustu leiktíð.

Þórdís er 33 ára gömul og er að ganga til liðs við Breiðablik í þriðja sinn. Hún lék fyrst með liðinu frá 2009–2013 og svo aftur 2021.

Þórdís á alls 119 leiki að baki fyrir Breiðablik og varð bikarmeistari með liðinu árið 2013.

Þórdís hefur spilað með Älta IF og Kristianstad í Svíþjóð og Apollon á Kýpur. Hún hefur þá spilað með Stjörnunni, FH, Þór/KA, KR og Val hérlendis.

Þórdís varð tvisvar Íslandsmeistari með Val og á tvo landsleiki að baki.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅