Þórdís Hrönn til Breiðabliks í þriðja sinn
Knattspyrnukonan Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er gengin í raðir Íslandsmeistara Breiðabliks á nýjan leik.
Þetta tilkynnti félagið í dag en Þórdís kemur til Breiðabliks frá Víkingi R., sem féll úr Bestu deildinni á síðustu leiktíð.
Þórdís er 33 ára gömul og er að ganga til liðs við Breiðablik í þriðja sinn. Hún lék fyrst með liðinu frá 2009–2013 og svo aftur 2021.
Þórdís á alls 119 leiki að baki fyrir Breiðablik og varð bikarmeistari með liðinu árið 2013.
Þórdís hefur spilað með Älta IF og Kristianstad í Svíþjóð og Apollon á Kýpur. Hún hefur þá spilað með Stjörnunni, FH, Þór/KA, KR og Val hérlendis.
Þórdís varð tvisvar Íslandsmeistari með Val og á tvo landsleiki að baki.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗