Bandaríkjaher æfir sig í að taka fjöldagrafir

Bandarískir hermenn hafa að undanförnu verið að æfa sig í að taka fjöldagrafir þar sem hægt er að grafa lík mörg hundruð hermanna í einu.

Þetta er í fyrsta sinn í marga áratugi sem þetta er æft en í æfingunni er gengið út frá að mörg hundruð hermenn hafi fallið á skömmum tíma á vígvellinum.

Skýrt var frá þessu í Army News. Þar segir að æfingin hafi farið fram í Fort Bragg í Norður-Karólínu.

Fjöldagrafir eru bráðabirgðalausn ef mörg hundruð hermann falla á skömmum tíma. Þegar stjórn hefur náðst á ástandinu á vígvellinum yrði byrjað að bera kennsl á líkin og flytja til Bandaríkjanna.

Talsmaður hersins sagði æfingunni hafi verið ætlað að veita tækifæri til að skoða hvernig föllnum hermönnum sé sýnd viðeigandi virðing í stríði og hvernig eigi að meðhöndla hina föllnu.

Hægt væri að grafa 2.400 hermenn á dag með þeirri tækni sem æfð var.

Prestar og aðrir, sem annast sálgæslu, tóku þátt í æfingunni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅