Sleggja og óteljandi sjálfur ekki nóg

Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi flokksins í hádeginu.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi flokksins í hádeginu. Ljósmynd/Aðsend

„Ég veit og skil að við viljum sjá hærri tölur í skoðanakönnunum. Það vil ég líka, en sígandi lukka er best. Og það er eitt sem ég hef lært af stjórnmálunum: Það skiptir ekki aðeins máli hvar við stöndum í dag. Það skiptir máli hvert við ætlum. Og það skiptir ekki síður máli hvort við höfum úthald til þess að komast þangað. Við höfum nefnilega verið á þessum stað áður.“

Þetta er meðal þess sem kom fram í ræðu Lilju Daggar Alfreðsdóttur, formanns Framsóknarflokksins, á miðstjórnarfundi flokksins, en í ræðunni gagnrýndi hún harðlega ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.

Dregur úr lífsgæðum og framtíðartækifærum

Í ræðunni vék Lilja að efnahagsástandinu og sagði verðbólgu of háa.

„Í október mældist hún 5,9 prósent. Stýrivextir Seðlabankans eru átta prósent. Þetta eru ekki bara tölur í skýrslum. Þetta er raunveruleikinn sem íslenskar fjölskyldur búa við. Þetta er ungt fólk sem reynir að komast inn á húsnæðismarkaðinn.

Þetta eru barnafjölskyldur sem þurfa að greiða af húsnæðislánum, kaupa í matinn og greiða reikningana um hver mánaðamót. Þetta eru fyrirtæki sem þurfa að fjármagna reksturinn og taka ákvarðanir um hvort þau geti ráðið nýtt fólk eða ráðist í fjárfestingar. Há verðbólga og háir vextir draga úr lífsgæðum og þau draga úr framtíðartækifærum.“

Verðbólgan hærri en þegar stjórnin tók við

Lilja sagði ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur því miður ófæra til að ganga rösklega til verka. Væru nú tvö ár liðin af kjörtímabilinu og verðbólgan hærri en þegar þau tóku við. Bætti hún við að ekki væri nóg að segjast vera með sleggju, henda í óteljandi sjálfur og halda að hlutirnir gerist af sjálfu sér.

„Við höfum glatað tveimur mikilvægum árum,“ sagði hún og bætti við að ríkisstjórnin skilaði ekki einungis auðu í efnahagsmálum heldur væri hún beinlínis skaðleg enda hafi skuldir heimila, fyrirtækja og ríkissjóðs hækkað um tugi milljarða vegna þessa.

Þá gagnrýndi hún fjárlagafrumvarp ársins 2027 og sagði ríkisstjórnina velta kostnaðinum yfir á heimilin með hækkun skatta og gjalda og niðurfellingu vaxtabóta.

„Ríkisstjórnin talar mikið um hallalaus fjárlög. En það er grundvallarmunur á því að ná
jafnvægi með skynsamlegri forgangsröðun og því að senda reikninginn einfaldlega áfram
til heimilanna.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅