Hlýrra var í Grímsey en höfuðborginni
Nýliðinn október var tiltölulega hlýr en mjög úrkomusamur. Þetta kemur fram í tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar.
Hlýjast var á Norðaustur- og Austurlandi en svalara á suðvesturhluta landsins.
Það bar til tíðinda að meðalhitinn var hærri í Grímsey en í Reykjavík.
Úrkoma var vel yfir meðallagi um allt land og úrkomudagar voru margir. Loftþrýstingur var lágur í mánuðinum og það var nokkuð illviðrasamt.
Óvenju djúp lægð gekk yfir landið þann 14. sem olli talsverðum skemmdum í Siglufirði.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗