Varamaðurinn reyndist hetja Leeds

Noah Okafor reyndist hetja Leeds í 1:0-sigri á Tottenham í 10. umferð ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta á Elland Road í Leeds í dag.

Leeds hafði ekki unnið í fimm leikjum í röð en liðið er nú komið með 14 stig í áttunda sæti deildarinnar. Tottenham er með tólf stig í í tíunda.

Okafor var nýkominn inn á völlinn sem varamaður þegar hann skoraði sigurmarkið á 79. mínútu.

Nico Elveldi varnarmaður Leeds og Omar Marmoush sóknarmaður Tottenham í baráttunni. AFP/Oli Scarff

Þá datt boltinn fyrir hann á teignum og Svisslendingurinn fór fram hjá Rodrigo Bentancur áður en hann smellti boltanum í netið, 1:0.

Tottenham reyndi að jafna metin eftir mark Okafor en náði því ekki og varð sigur Leedsara því staðreynd.

Mathys Tel úr Tottenham og James Justin úr Leeds í baráttunni í dag. AFP/Oli Scarff

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅