Varamaðurinn reyndist hetja Leeds
Noah Okafor reyndist hetja Leeds í 1:0-sigri á Tottenham í 10. umferð ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta á Elland Road í Leeds í dag.
Leeds hafði ekki unnið í fimm leikjum í röð en liðið er nú komið með 14 stig í áttunda sæti deildarinnar. Tottenham er með tólf stig í í tíunda.
Okafor var nýkominn inn á völlinn sem varamaður þegar hann skoraði sigurmarkið á 79. mínútu.
Þá datt boltinn fyrir hann á teignum og Svisslendingurinn fór fram hjá Rodrigo Bentancur áður en hann smellti boltanum í netið, 1:0.
Tottenham reyndi að jafna metin eftir mark Okafor en náði því ekki og varð sigur Leedsara því staðreynd.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
