Hjartalæknir varar við vinsælum drykk – „Ekki drekka þá“
Árlega er drykkur einn seldur í miklu magni um allan heim. Nemur salan 495 milljörðum dollara á ári. Hjartalæknirinn Jeremy London segir að ekki sé öruggt að drekka þennan drykk, ekki einu sinni í hófi.
London hefur 25 ára starfsreynslu og deilir af þekkingu sinni á samfélagsmiðlum. Í færslu á Instagram sagðist hann forðast eftirtalda hluti til að lengja líf sitt. Hann hvatti fólk um leið til þess að vera „meðvitað um það sem það setur í munninn“.
„Númer eitt, reykingar. Ekki spurning að þetta er það allra versta sem þú getur gert líkamanum. Eyðileggur lungun, veldur lungnakrabbameini, mikil hætta á hjartavandamálum, hjartaáföllum og blóðtappa. Ekki reykja,“ skrifaði hann.
Hann sagðist einnig sleppa því að borða brauð, pasta, hvítt hveiti og heilhveiti.
Því næst nefndi hann áfengi til sögunnar sem hann sagði vera „eitur fyrir hverja einustu frumu líkamans“.
Ef þú hugsar með þér að nú sé best að sleppa áfenginu og fá þér bara gosdrykk í staðinn, þá er það ekki góður kostur heldur að mati London. Hann sagði gosdrykki vera „fljótandi dauða“. „Ekki drekka þá,“ sagði hann að sögn LadBible.
Hann sagði gosdrykki vera svona slæma því þeir innihaldi „öll þessi viðbættu efni, litarefni, bragðefni, rotvarnarefni og fleira“.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗