Lygileg innkoma Emelíu
Landsliðskonan Emelía Óskarsdóttir fór gjörsamlega á kostum í sigri Danmerkurmeistara Köge, 6:0, á AGF í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í Köge í dag.
Emelía kom inn á 56. mínútu leiksins í stöðunni 1:0 og skoraði síðan tvö mörk og lagði upp tvö til viðbótar.
Köge er í toppsæti deildarinnar með 35 stig, átta stigum á undan Bröndby í öðru.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗