Marimedx hlaut hvatningarverðlaunin

Svava Kristinsdóttir, forstjóri og stofnandi Marimedx, er hér í miðið með verðlaunagripinn Svifölduna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hvatningarverðlaun Sjávarútvegssýningarinnar og TM, Svifaldan, voru að þessu sinni afhent nýsköpunarfyrirtækinu Marimedx.

Hvatningarverðlaun Sjávarútvegsráðstefnunnar og TM eru í formi viðurkenningarskjals og svo verðlaunagripsins Sviföldunnar sem er gerð af listamanninum Jónasi Braga Jónassyni.

Svava Kristinsdóttir, forstjóri og stofnandi fyrirtækisins, tók við verðlaununum úr hendi Metúsalems Hilmarssonar frá TM.

Marimedx er heilbrigðistæknifyrirtæki sem þróar lausnir fyrir sárameðferð og endurnýjun vefja sem unnar eru úr þörungum.

Auk Marimedx voru tilnefnd fyrirtækin Nanna Lín, fyrir nýsköpun við endurmótun þorsk- og laxroðs þannig að úr verði fiskileður sem betur nýtist í fatahönnun, og Rauðátan, fyrir nýsköpun í þróun nýrrar auðlindanýtingar í íslensku atvinnulífi.

„Með þessum verðlaunum viljum við hvetja frumkvöðla og hugvitsfólk til frekari dáða til að halda áfram í að þróa nýjar lausnir, ögra viðteknum venjum og hugmyndum og stuðla að sjálfbærni og framtíð sjávarútvegs og tengdum greinum,“ sagði Metúsalem við afhendinguna.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅