„Sannleikurinn selur ekki svínakjöt“
Rósa Líf Darradóttir, formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi, segir iðnaðinn alveg eins hér á landi og erlendis. Samsett mynd
Rósa Líf Darradóttir, formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi, segir sannleikann sáran og á þar við efni myndskeiða sem Einar Logi Pétursson birti innan úr svínabúum Stjörnugríss á samfélagsmiðlum í gær, en hann hefur í tvígang brotist inn í svínabú fyrirtækisins.
„Við höfum náttúrulega ár eftir ár, alltaf um jólin, verið með vitundarvakningarherferð er varðar aðbúnað svína í matvælaiðnaði. Þannig að við höfum alltaf verið að reyna að koma réttum upplýsingum til almennings varðandi þetta,“ segir Rósa við mbl.is.
Svínin ofboðslega greind
Hún segir svín ofboðslega greind dýr sem eru forvitin og hafa ríka eðlisþörf til að hlaupa um og róta í mold og haga sér eins og dýr, en í iðnvæddu kerfi eins og þekkist í verksmiðjubúskap segir hún dýrunum neitað um alla möguleika til að eiga líf sem sé þess virði að lifa.
Sé þessi iðnaður alveg eins hér á landi og erlendis.
„Á þessum myndböndum sjáum við nákvæmlega hvernig þetta er. Það sem er kannski mest sláandi í þessu er að þetta er normið. Þessi búr sem dýrin eru haldin í og á þessu steypta gólfi mánuðum saman. Þetta er framleiðsla sem byggir á þjáningu dýra og hún er kerfislæg.“
Alltaf vont að sjá dýr þjást
Spurð hvort efni myndbandanna hafi komið henni á óvart svarar hún því neitandi, þó sé alltaf vont að sjá dýr þjást.
„En þetta stemmir alveg við þær upplýsingar sem er hægt að fá alls staðar. Svona er bara framleiðslan og kannski er það bara þannig að það eru svolítið sterk hagsmunaöfl sem vilja auðvitað ekki að þetta líti dagsins ljós af því að sannleikurinn selur ekki svínakjöt. Það er bara svoleiðis.“
Valdið í höndum neytenda
Rósa bætir við að nú geti fólk átt það við sjálft sig hvort það vilji taka þátt í því að auka eftirspurn með því að versla vörur sem þessar úti í búð.
„Megnið af öllu svínakjöti sem þú getur keypt úti í búð kemur frá dýri sem hefur átt svona líf,“ segir hún og bætir við að vonandi átti neytendur sig á því að þeir hafi valdið og geti stöðvað þetta.
Matvælastofnun breyti ekki framleiðslukerfinu
Í yfirlýsingu Stjörnugríss frá því í gær kom fram að eftirlit með dýrunum væri mikið og stöðugt. Þá skoðaði þjónustudýralæknir búið á tveggja vikna fresti og kom búfjáreftirlit MAST í eftirlit á búinu þann 15. október síðastliðinn. Hafi engar alvarlegar athugasemdir komið eftir það.
„Málið er að Matvælastofnun starfar bara innan takmarkana sem liggja í kerfinu. Hryllingurinn í þessu er sá að þetta sem við sjáum, aðbúnaður þessara dýra, þetta má vegna þess að það er ekkert ólöglegt að eiga sér stað þarna. Matvælastofnun starfar bara eftir stjórnvöldum hvers tíma, þau hafa bara ákveðin tól. Það er ekki Matvælastofnun sem breytir heilu framleiðslukerfi.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗