Segir Rússa hafa beitt norðurkóreskum eldflaugum
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að Rússar hafi beitt eldflaugum frá Norður-Kóreu í árásum á Úkraínu í nótt og hæft eitt af mikilvægustu orkuverum landsins.
Hann sakar Rússa um að herða árásir sínar til að auka þrýsting á Úkraínu og bandamenn hennar fyrir viðræður sem fram fara í næstu viku að frumkvæði Bandaríkjanna.
„Tæknilegt mat stendur yfir á þeim stöðum sem urðu fyrir skotflaugum. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum notuðu Rússar KN-23-eldflaugar, framleiddar í Norður-Kóreu og þaðan fengnar, á eitt af lykilorkuverunum sem skemmdust,“ skrifaði Selenskí á samfélagsmiðlum í dag.
Árás í aðdraganda viðræðna
Að sögn forsetans kom árásahrinan í aðdraganda nýrrar tilraunar Úkraínu og samstarfsríkja hennar til að blása lífi í friðarviðræður.
„Með því að herða árásir á Úkraínu og innviði okkar einmitt núna reyna Rússar að skapa sér frekari forsendur til að þrýsta á afstöðu Úkraínu og samstarfsríkja okkar,“ sagði Selenskí.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
