Lítur ekki á mál Tækniskólans sem klúður

Orri segir málið ekki hafa áhrif á önnur verkefni eða framkvæmdir á vegum bæjarins. Samsett mynd/Sigurður Bogi/Eggert

Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn og formaður bæjarráðs í Hafnarfirði, telur að niðurstaða fáist í bótakröfu Tækniskólans á hendur bænum fyrir áramót.

Hann vill ekki tjá sig um upphæðina en segir bæinn ekki líta á málið sem mistök af sinni hálfu.

Snýst um að ná sátt

„Við erum bara í samtali við þau um að klára málið. Það snýst um að ná sátt við Skólastræti,“ segir Orri í samtali við mbl.is.

„Við þurfum að loka þessu og ég vona að það verði eitthvað að frétta innan tveggja, þriggja vikna.“

Skólastræti Tækniskólans ehf. var stofnað árið 2024 til að annast byggingu og rekstur fasteigna Tækniskólans, samkvæmt samkomulagi ríkisins, Hafnarfjarðarbæjar og skólans.

Félagið lagði nýverið fram bótakröfu á hendur bænum eftir að áform um að reisa nýjan skóla við Flensborgarhöfn runnu út í sandinn.

Egill Jónsson, stjórnarformaður Tækniskólans, sagði í samtali við RÚV að krafan næmi tugum milljóna króna og útilokaði ekki að hún hlypi á hundruðum milljóna.

Horfa ekki á mákið sem mistök eða klúður

Orri vill ekki tjá sig um fjárhæðina. „En auðvitað hefur þetta kostað Skólastræti einhverja peninga, þannig að við áttum alveg von á því að það kæmi krafa um greiðslu,“ segir hann.

Hann telur að nákvæm upphæð liggi fyrir fyrir áramót.

Aðspurður hvort eitthvað hefði mátt betur fara af hálfu bæjarins segir Orri svo ekki vera.

„Þetta gerðist bara eins og það gerðist og við ætlum ekkert að horfa á það sem einhver mistök eða klúður. Nú erum við bara að klára málið og á endanum verður þetta vonandi til góðs fyrir bæði Hafnarfjörð og skólann.“

Hann segir málið ekki hafa áhrif á önnur verkefni eða framkvæmdir á vegum bæjarins.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅