Rýnt í leiksviðið: Endurspeglun þjóðfélags og marglaga lífs manna í einu höggi

Það er líklega stílbrot að skrifa gagnrýni um leiksýningu sem verið hefur á fjölum Þjóðleikhússins í rúmar þrjár vikur og sýnd, þegar þessi orð eru rituð, átta sinnum. Verkið er hins vegar þess eðlis að það er vart annað hægt, í ljósi þess að segja má að í því eina kjaftshöggi sem leikritið hverfist um endurspeglist í raun heilt þjóðfélag og ekki síður hversu marglaga, þversagnakennt og oft á tíðum flókið líf manneskja getur verið.

Hér er að sjálfsögðu átt við leikritið Högg sem sýnt er um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu. Undirritaður fór á áttundu sýningu sem fram fór í gærkvöldi, 6. nóvember. 

Efni Höggs hefur verið vel kynnt bæði af leikhúsinu sjálfu og í fjölmiðlum en það er líklega ekki oft sem að sannsögulegt leikrit er sett upp á Íslandi og það að viðstöddum aðalpersónunum. Í stuttu máli þá er í sögunni sögð sagan af því þegar 19 ára gamall piltur, Jacob Dunne, varð árið 2011 manni að nafni James Hodgkinson að bana, í borginni Nottingham á Englandi, með einu kjaftshöggi. Dunne var dæmdur í fangelsi en sneri lífi sínu til betri vegar þegar hann losnaði og þar átti stóran þátt sú ákvörðun foreldra James, David Hodgkinson og Joan Scourfield, og Jacob sjálfs að taka þátt í verkefni sem byggir á svokallaðri uppibyggilegri réttvísi. Í stað þess að velja reiðina hittu þau manninn sem banaði syni þeirra, það tókust með þeim sættir og hafa þau þrjú unnið síðan saman að því auka vitundarvakningu um að aðeins eitt högg getur haft óafturkræfar afleiðingar.

Ísland og Bretland

Af öllum þeim persónum sem koma fram í verkinu eru persónusköpunin einna dýpst þegar kemur að þeim þremur en nánar verður vikið að því síðar.

Þótt sagan í Höggi sé svo sannarlega sammannlegg þá er alveg ljóst að um er að ræða sögu sem sprottin er upp úr bresku þjóðfélagi. Þessi hlið verksins er meira í forgrunni fyrir hlé þegar sögusviðið og líf Jacob innan þess er rammað inn. Hann er afpsprengi hverfisins í Nottingham, sem hann er alinn upp í. Hverfi þar sem enginn hefur mikið á milli handanna. Hverfi sem eins og svo mörg önnur svipuð hverfi í öðrum breskum borgum hefur farið hnignandi. Öll þjónusta er farin úr hverfinu, innviðirnir grotna niður og hugmyndin um mikilvægi þess að standa á eigin fótum og að hægt sé að eiga gott líf með nægum tækifærum er á sífelldu undanhaldi.

Jacob, sem raunar er alltaf kallaður Jakob í verkinu, eina nafnið á persónu sem er nefnd á nafn í sýningunni sem ekki er borið fram eins og í ensku, og fleirum verður tíðrætt um hugtakið duglegt alþýðufólk. Velt er upp þeirri spurningu hvort breskt þjóðfélag sé orðið þannig að fólk sem býr í hverfi og við aðstæður eins og Jakob hafi raunverulega litla sem enga möguleika á að komast áfram til betra lífs af eigin rammleik eða hversu mikið það snýst um hugarfar þeirra sjálfra.

Höggið sem þurfti

Fyrir hlé er fjallað um höggið örlagaríka og hvað leiddi til þess að Jakob tók þá skyndiákvörðun að veita James það, þótt hann þekkti hann ekkert og James hefði ekkert gert honum.

Höggið er endapunktur á eins hvers konar spíral sem Jakob er kominn í. Hann flosnar upp úr skóla og líf hans snýst um skemmtanalífið, slagsmál, fíkniefnaneyslu og fíkniefnasölu og að gera óskunda með félögum sínum. Jakob er alinn upp á ágætu heimili þar sem engin vanræksla eða ofbeldi virðist vera til staðar en samt lendir hann á glapstigum. Það virðist engin sérstök ástæða fyrir því heldur gerist það bara og virðist nánast óhjákvæmilegt, ekki síst vegna umhverfisins og samfélagsins í hverfinu en einnig ADHD og einhverfugreininga sem hann fær þegar hann fer að nálgast unglingsaldurinn. Það þarf síðan á endanum eitthvað róttækt eins og höggið til að hann losni úr þeim höftum hverfisins sem hann hefur verið í.

Í Höggi er velt upp mjög áhugaverðum spurningum um gjörðir okkar og ábyrgð okkar á þeim í samspili við samfélagið og aðstæðurnar sem við lifum í. Þótt einstaklingar beri hina endanlegu ábyrgð á eigin gjörðum er ekki hægt að líta framhjá þeim jarðvegi sem þeir eru sprottnir upp úr. Í uppsetningu Þjóðleikhússins er þessum spurningum velt upp á kraftmikinn og blæbrigðaríkan hátt í senn og fyrir það eiga aðstandendur sýningarinnar heiður skilinn.

Þversagnir lífsins

Eftir hlé er leið Jakobs, Joan og David til sátta og næstu skrefa í lífinu eftir atburðinn hörmulega í forgrunni. Þessi angi sögunnar er kraftmikill og áhrifaríkur vottur um það að líf okkar mannfólksins getur verið marghliða, flókið, og þversagnakennt.

Í okkur geta togast á tilfinningar eins og reiði, eftirsjá, samviskubit, viðleitni til að axla ekki ábyrgð og þrá til sátta, að finna einhverja leið til að halda áfram eftir að grundvelli tilverunnar er kippt undan manni, ýmist af manni sjálfum eða öðru fólki.

Í þessu eina höggi og leikritinu Högg endurspeglast því hversu marghliða tilveran getur verið og að flest fólk er hvorki fullkomlega vont eða gallalausir englar.

Ekki er annað hægt en að segja en Unnur Ösp Stefánsdóttir, í hlutverki Joan, og Guðjón Davíð Karlsson í hlutverki David, komi frábærlega til skila þeim þversagnakenndum tilfinningum sem bærast í brjóstum forleldranna sem missa son sinn á svo skyndilegan og skelfilegan hátt. Þau byrja á því vera reið en fara svo að velta alvarlega fyrir sér, þó David sé tregari til þess í fyrstu, hvort hægt sé að halda lífinu áfram í klóm reiðinnar og hvort það lini nokkuð sársauka þeirra að Jakob sökkvi endanlega til botns í lífinu. Þau berjast við að halda reisn sinni og ró en þegar angist þeirra brýst fram verður hún nánast áþreifanleg. Unnur Ösp og Guðjón Davíð skilja mann eftir með þá tilfinningu að það sé ekki annað hægt en að dást að styrk Joan og David.

Jakob van Oosterhaut, sem fer með hlutverk nafna síns Jakobs, á einnig fantagóða frammistöðu. Hann skilar því vel hvernig Jakob breytist og þroskast úr reiðum og stefnulausum strák sem forðast ábyrgð og afleiðingar gjörða sinna yfir í mann sem horfist í augu við það sem hann hefur gert og snýr lífinu við til betri vegar.

Meðvirknin 

Einnig ber sérstaklega að minnast á frammistöðu Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur sem leikur móður Jakobs, sem ekki er nefnd á nafn. Móðirin, sem er einstæð, vill greinilega Jakobi og hinum syni sínum allt það besta en virkar ráðalaus gegn óæskilegum áhrifum umhverfisins og veit ekkert hvað hún á að gera þegar hegðun Jakobs fer niður á við og námsárangurinn með og hann fær greiningarnar. Hún fær litla sem enga aðstoð frá skólanum en virðist hreinlega skorta andlegan styrk til að taka slaginn fyrir son sinn og velur því leið meðvirkninnar í staðinn.

Í túlkun Eddu Bjargar er brugðið upp mynd af konu sem er í senn eins og sonur sinn að vissu leyti hálfgerður fangi aðstæðna sinna en um skortir nauðsynlega eiginleika til að láta ekki aðstæðurnar skilgreina sig fullkomlega. Edda Björg skilur mann eftir með þá tilfinningu að langa að klappa móðurinni á öxlina og segja henni að þetta verði allt í lagi en á sama tíma að hvetja hana til að taka sig saman í andlitinu.

Aðrir leikarar í Höggi þau Hallgrímur Ólafsson, Selma Rán Lima, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Kristinn Óli S.Haraldsson, Jónmundur Grétarson og Sigurbjartur Sturla Atlason fá kannski ekki úr jafn miklu að moða en þau leika öll nokkur hlutverk og allt eru það persónur sem gegna mikilvægu hlutverki í sögunni hver á sinn hátt. Sýnir hvert og eitt þeirra hæfileika sína til að túlka persónur sem eru flesta gerólíkar.

Tæknin

Það er augljóslega margt hægt að segja um Högg. Sýningin er þó ekki gallalaus en þar má t.d. að nefna að á stöku stað virtist tæknileg útfærsla á annars mjög góðri tónlist Gísla Galdurs Þorgeirssonar eilítið einkennileg. Í einu tilfinningaþrungnu atriði til að mynda hljómaði tónlistin eins og hún kæmi úr fjarska utan við salinn.

Mögulega átti þetta að tákna þeir heitu tilfinningar sem bærðust innra með persónunni en við þessa útfærslu virkaði þetta meira eins og truflun í líkingu við hósta og hringingar í símum áhorfenda, sífellt skrjáf í sælgætispoka eins áhorfanda og hljóðin sem mynduðust við frágang og þrif starfsmanna leikhússins á glösum gesta og bárust inn í salinn.

Kannski var þetta ekki einu sinni hluti af sýningunni heldur hljóð úr annari sýningu í Þjóðleikhúskjallaranum, en ef svo er þá mættu stjórnendur leikhússins taka það til sérstakrar skoðunar. Ein sýning á ekki að trufla aðra.

Annar galli sem undirritaður rak augun í er að mögulega þarf að þrífa ljósabúnaðinn fyrir ofan stóra sviðið því einstaka sinnum svifu það sem virtist ekki vera annað en rykkorn niður á sviðið.

Staður og stund

Mögulega hefði einnig mátt skoða hvort staðfæra hefði átt sýninguna meira því eins og áður segir er hún, sérstaklega fyrir hlé, breskur þjóðfélagsspegill. Á móti kemur að í verkinu er spurt stórra spurninga sem eru alls ekki bundnar við Bretland.

Heilt yfir er Högg mjög áhugavert og áhrifamikið verk sem sett er upp í kraftmikilli sýningu Þjóðleikhússins sem sýnir bæði ljótar og fallegar hliðar mannlífsins. Sýning sem er sannarlega þess virði að gera sér ferð til að sjá.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅