Vel gerð vitleysa

„Á heildina litið er IceGuys – The Movie þrusugóð skemmtun og býður upp á bæði hlátur og mikinn hasar,“ segir rýnir um myndina.

Ríflega þrjú ár eru liðin síðan fyrsta lag IceGuys kom út. Margir landsmenn ráku upp stór augu yfir þessu framtaki og spurðu sig hvort þarna væri á ferðinni grín eða alvara. Þessir farsælu tónlistarmenn að fara þessa leið og á þessum aldri? Og Rúrik Gíslason með? Þetta virtist vera skrítið útspil. Stuttu síðar komu út sjónvarpsþættirnir og varð heildarmyndin þar með skýrari. Leikgleðin var allsráðandi og IceGuys kristallaðist í húmor og fagmennsku. Blöndu af gríni og alvöru.

Lokasprettur

Árið í ár markar lokasprett IceGuys og punkturinn er settur með eins stórum hætti og hugsast getur, á stóru tjaldi með kvikmyndinni IceGuys – The Movie. Í þetta sinn finna þeir Jón Jónsson, Friðrik Dór, Rúrik Gíslason, Aron Can og Herra Hnetusmjör sig óvænt í alþjóðlegu strákabandakeppninni Battle of the Boybands. Í fyrstu eru strákarnir í IceGuys efins og óviljugir til þátttöku en þeir ákveða fljótt að leggja allt í sölurnar til að sigra. Keppnin er háð í raunveruleikasjónvarpi og þeirra helsti keppinautur verður hið þýska band Team 5ünf.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅