Á förum eftir 13 ár hjá United
Vinstri bakvörðurinn Luke Shaw er að öllum líkindum á förum frá enska knattspyrnufélaginu Manchester United eftir yfirstandandi tímabil.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir frá en Shaw hefur ekkert spilað með Manchester United upp á síðkastið vegna meiðsla.
Hann gekk í raðir félagsins frá Southampton sumarið 2014 og hefur síðan spilað 330 leiki og skorað fimm mörk.
Shaw á 34 leiki og þrjú mörk að baki, meðal annars í úrslitaleik EM, fyrir enska landsliðið.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗