Undrabarn United á leið til Real Madrid – Dreymir um Gullknöttinn
JJ Gabriel, 16 ára gamalt undrabarn Manchester United, virðist vera á leið til Real Madrid eftir að hafa óskað formlega eftir því að yfirgefa enska félagið í september.
Gabriel hefur nú gefið skýra vísbendingu um framtíð sína í viðtali við spænska blaðið Marca.
Þegar hann var spurður hvort hann kysi frekar Real Madrid eða Barcelona var svarið einfalt. „Auðvitað Madrid.“
„Draumur minn er að vinna Gullknöttinn,“ bætti Gabriel við.
Samkvæmt Daily Mail er Real Madrid bjartsýnt á að ganga frá félagaskiptunum í janúar. Gabriel hefur þegar fengið vegabréf frá Evrópusambandsríki í gegnum kýpverskan uppruna móður sinnar.
Gabriel hefur slegið nokkur met með yngri liðum United og skoraði meðal annars þrennu í UEFA Youth League skömmu áður en hann óskaði eftir félagaskiptum.
Fari svo að hann gangi til liðs við Real Madrid er búist við að hann spili með varaliði félagsins, Castilla, ásamt því að taka þátt í unglingadeild Meistaradeildarinnar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗