Ljóst hver tekur við fyrirliðabandinu af Ronaldo
Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. nóvember 2026 13:21
Bernardo Silva á æfingu á Laugardalsvelli fyrr í sumar. DV/Valli
Bernardo Silva verður nýr fyrirliði portúgalska landsliðsins eftir að Cristiano Ronaldo ákvað að leggja landsliðsskóna á hilluna.
Jorge Jesus, landsliðsþjálfari Portúgals, hefur ákveðið að fela Silva fyrirliðabandið eftir óvænta ákvörðun Ronaldo.
Ronaldo kvaddi landsliðið eftir 23 ára feril en ákvörðunin kom bæði þjálfaranum og portúgalska knattspyrnusambandinu á óvart.
Silva hefur verið lykilmaður í portúgalska landsliðinu undanfarin ár og þykir vel til þess fallinn að taka við leiðtogahlutverkinu.
Hann gekk til liðs við Real Madrid í sumar eftir afar farsælan feril hjá Manchester City.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗