Prófessor varar við notkun paracetamols við nokkrum algengum verkjum

Pressan

Laugardaginn 7. nóvember 2026 13:30

Paracetamol gagnast ekki við öllum verkjum.

Margir grípa verkjatöflur þegar líkaminn sendir skilaboð um að honum sé illt einhvers staðar. Pakki af verkjatöflum er oft innan seilingarfjarlægðar og töflurnar eru notaðar í miklu meira en bara að takast á við höfuðverk.

En þrátt fyrir að það sé auðvelt að grípa paracetamol, þá virkar það alls ekki í öllum tilfellum að því er segir í umfjöllun dagens.

Jon Trærup Andersen, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla og yfirlæknir á Bispebjerg sjúkrahúsinu, sagði í samtali við Danska ríkisútvarpið að það sé ekki ráðlegt að taka paracetamol, sem er virka efnið í ýmsum verkjalyfjum, við öllum kvillum.

Hann sagði að í eftirfarandi tilfellum eigi fólk að hugleiða hvort verkjatöflurnar séu rétta lausnin:

Höfuðverkur – Þrátt fyrir að paracetamol sé oft notað við höfuðverk, þá eru áhrifin á spennuhöfuðverk takmörkuð. Andersen sagði að ef 22 einstaklingar taki paracetamol við spennuhöfuðverk, þá upplifi aðeins einn þeirra minni verki eftir tvær klukkustundir.

Tíðaverkir – Paracetamol er ekki endilega besta lausnin þegar tíðaverkir hrella. Andersen vísaði til niðurstöðu rannsóknar einnar sem leiddi í ljós að það hafði meiri áhrif að nota hita gegn verkjunum.

Hiti – Paracetamol getur komið að gagni hér en þó með þeim galla að lyfið getur lækkað hitann en það flýtir ekki bataferlinu.

Bakverkir – Paracetamol hefur takmarkaða virkni gegn venjulegum bakverkjum. Þess í stað er mælt með hreyfingu því hún veitir oft meiri verkjastillingu.

Svefnvandamál – Sumir nota paracetamol þegar þeir eiga erfitt með að sofna. Andersen sagði að paracetamol hafi engin bein áhrif sem ýta undir að fólk sofni.

Ef svefnvandinn á rætur að rekja til hita eða verkja, þá getur lyfið óbeint átt þátt í að lina einkennin.

Taugaveiklun, stress og kvíði

Andersen varar einnig við notkun paracetamol við andlegum óþægindum. Lyfið hafi engin áhrif á taugaveiklun, stress eða kvíða og þess vegna sé gagnslaust að taka það við þessu.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅