Sigmundur Ernir skrifar: Heimsku Trumps var hafnað
Loksins berast góðar fréttir frá Bandaríkjunum. Fáráðlingnum hefur verið settur stóllinn fyrir dyrnar. Það er komið nóg af afleikjum trúðsins.
Sá sem svona skrifar hefur varið síðustu dögum og vikum í Washington og New York og það verður að segjast alveg eins og er að hæstráðandanum í Hvíta húsinu hefur ekki verið hælt í hans eyru af frjálslyndari hluta heimamanna, og jafnvel ekki heldur af samflokksmönnum hans í repúblikanahreyfingunni sem slökktu snemma á kosningasjónvarpinu á þriðjudagskvöld, bugaðir af skælum og skömm.
Reyndin var einn stærsti sigur í sögu lýðræðisins í Bandaríkjunum, hvorki meira né minna, og raunar svo sögulegur að demókrati í Kansas var kosinn í öldungadeildina í fyrsta skipti frá 1932, sem í hartnær heila öld hefur þótt vera pólitískur ómöguleiki. Demókratar fögnuðu líka sigri í baráttunni um öldungadeildarsæti í Iowa, Maine, Norður-Karólínu, Ohio, Suður-Karólínu og Texas sem sætir álíka tíðindum, og gott ef ekki pólitískum kaflaskilum.
Og talandi um síðastnefnda ríkið, gamla sauðtrygga suðvestrið, þar sem demókratinn James Talarico var fyrstur sinna flokksmanna til að vinna öldungardeildarsæti frá 1988, en Donald Trump var svo handviss um að halda þar velli að hann tefldi fram Ken nokkrum Paxton, sem forsetinn sjálfur sagði opinberlega að væri bæði leiðinlegur og lélegur til verka, en fólk ætti samt að kjósa hann. Hann handvaldi líka nokkra aðra frambjóðendur af skrautlegra taginu, en pólitískir áhugamenn hér vestra eru sammála fréttaskýrendum um að Paxton þessi sé sennilega versta val á kandídat, jafnt fyrr og síðar í sögu lands og þjóðar.
Á meðan gerðust þau táknrænu tíðindi að Abdul el-Seyed vann öldungadeildarsætið í Michigan af mannkostum sínum einum saman, en hann verður fyrsti músliminn til að taka sæti í Senatinu þegar hann sver embættiseið í janúar. Í Georgíu vann demókratinn Jon Ossoff með átján prósentustiga mun, svo miklum raunar, og með svo óvæntum yfirburðum, að þegar er farið að máta hann við forsetaframboð vegna persónutöfra og pólitískrar orðræðu. Og þá er ónefnd Keisha Lance Bottoms sem landaði ríkisstjóraembættinu í Georgíu með glæsibrag, fyrst svartra kvenna í þann starfa, af ástæðum sem rekja má vitsmuna hennar, kjörþokka og innihaldsríkrar stjórnmálastefnu.
Því hér var komið fólk sem stóð fyrir eitthvað og hafði skýrar hugmyndir um betra samfélag og þorði að berjast fyrir þeim, kinnroðalaust, og hélt sínar fantagóðu framboðsræður, óháð orðum andstæðinganna sem voru uppfull af fáránlegum ásökunum, fordómum, lygum og rógi, innan um viðbjóðslegar auglýsingar þar sem mannorð keppinautanna var troðið í svaðið.
„Viðmælendur mínir í Vesturheimi segja niðurstöðu kosninganna – og þann örugga meirihluta sem demókratar unnu í báðum deildum, sem fór vel að merkja langt fram úr fylgiskönnunum – vera algera höfnun á Trump og Trumpisma …“
Það var komin fram þreyta á óðamála öskurapanum, ekki síst á meðal svartra kjósenda og unga fólksins á aldrinum 18 til 34 ára, sem skilaði sér aftur til demókrata, næsta langþreytt á kjánahrollinum einum saman. Það merkti öðru fremur að andstæðingum Trumps tókst, ólíkt því sem áður hefur gerst, að auka kjörsókn og virkja hóp sem lengst af hefur verið talinn líklegur til að sitja heima.
Viðmælendur mínir í Vesturheimi segja niðurstöðu kosninganna – og þann örugga meirihluta sem demókratar unnu í báðum deildum, sem fór vel að merkja langt fram úr fylgiskönnunum – vera algera höfnun á Trump og Trumpisma, svo og þeim glórulausa yfirgangi sem einkennt hafi pólitískan einleik þessa kokhrausta karls á forsetastóli. Ekki einasta hafi heimska ráðríkið verið orðið innantómt, heldur hafi hrein og klár svik við kjósendur Repúblikanaflokksins blasað við þeim á kjördegi. Fjöldi fólks hafi kosið Trump í nóvember 2024 vegna loforða hans um að bæta kjör almennings, lækka verðbólgu og fara ekki í stríð, en hann hafi brotið öll þessi loforð og það hafi reitt kjósendur til reiði, svo ekki sé meira sagt.
Vindhaninn Donald Trump segist sigraður geta unnið með Demókrötum í báðum deildum þingsins – og þó það nú væri, því maðurinn hefur lengst af fullorðinsára sinna stutt Demókrataflokkinn, svo því sé til haga haldið – en það má ekki vanmeta jafn illa særðan gamblara og maðurinn er í raun og sann. Evrópskir fréttaskýrendur hafa bent á að þótt Demókratar muni ráða báðum deildum Bandaríkjaþings eftir áramót, verði utanríkismál á forræði forsetans að veigamestu leyti, og afstaða hans skipti miklu máli fyrir framvindu mála í Evrópu hvað tolla, viðskipti og friðarmöguleika í álfunni varði.
Hann verði herra neitunarvald – og þegar menn eigi bara eitt vopn eftir í búri sínu, megi það heita hættulegra en nokkru sinni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗