Aldan er eins árs: „Við erum ótrúlega stoltir“

Páll Fannar Pálsson og Haraldur Geir Hafsteinsson eru eigendur Öldunnar sem fagnar nú eins árs afmæli sínu. Ljósmynd/Aðsend

„Það er magnað að hugsa til þess að heilt ár sé liðið frá því við opnuðum. Tíminn hefur flogið áfram og þetta hefur verið bæði skemmtilegt og lærdómsríkt ár,“ segir Páll Fannar Pálsson, annar eigenda Öldunnar, fisk- og sælkeraverslunar í Spönginni.

Verslunin fagnar eins árs afmæli um þessar mundir. Eigendur Öldunnar, Páll Fannar og Haraldur Geir Hafsteinsson, eru jafnan kallaðir Palli og Halli. Þeir segja viðskiptavinina hafa átt sinn þátt í að móta sælkeraverslunina á fyrsta starfsárinu. Nýir réttir og vörur hafi bæst við úrvalið, meðal annars með hliðsjón af óskum og ábendingum viðskiptavina.

„Við erum fyrst og fremst ótrúlega þakklátir fyrir þær frábæru viðtökur sem við höfum fengið,“ segja þeir.

Sérstaklega sé ánægjulegt að sjá sömu andlitin aftur og aftur.

„Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að fólk sé ánægt og vilji koma aftur. Við höfum lagt mikinn metnað í að bjóða upp á ferskan fisk, spennandi fiskrétti og vandaðar sælkeravörur. Það er virkilega ánægjulegt að finna fyrir því trausti sem viðskiptavinirnir sýna okkur.“

Réttirnir þróast með viðskiptavinunum

Halli hefur lagt áherslu á þróun fiskréttanna. Hann segir markmiðið að viðskiptavinir geti fundið eitthvað við sitt hæfi, bæði í hversdagsmatinn og þegar meira stendur til.

„Við viljum að það sé alltaf spennandi að koma í Ölduna og að fólk finni eitthvað gott í matinn, hvort sem er fyrir hversdaginn eða þegar gera á sérstaklega vel við sig,“ segir hann.

„Við erum stoltir af því sem við höfum byggt upp, en við erum rétt að byrja.“

Jólasíldin á leiðinni

Fram undan er undirbúningur jólanna. Á næstu dögum bætast jólavörur við úrvalið, meðal annars reyktur og grafinn lax, sósur og jólasíld. Þá verður einnig boðið upp á humar og humarsúpu.

„Jólasíldin hefur fengið alveg frábærar viðtökur og margir bíða spenntir eftir henni. Hún verður að sjálfsögðu á sínum stað fyrir jólin,“ segir Palli.

Á næstu dögum bætast jólavörur við úrvalið, meðal annars reyktur og grafinn lax. Ljósmynd/Aðsend

Þeir félagar deila hér með lesendum uppskrift að smjörsteiktum skötusel með kartöflusmælki, gulrótum og rjómalagaðri sveppasósu með timjan og parmesan. Þeir benda einnig á að í tilefni afmælisins verða tilboð í versluninni dagana 9. til 13. nóvember.

Smjörsteiktur skötuselur með kartöflusmælki og rjómalagaðri sveppasósu

Smjörsteiktur skötuselur, uppskrift úr smiðju eigenda Öldunnar, sem fagnar eins árs afmæli. Ljósmynd/Aðsend

Skötuselur

  • 1 kg hreinsaður skötuselur
  • 1 msk. olía
  • 1 msk. smjör
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 1 grein rósmarín
  • Salt og pipar eftir smekk

Aðferð

  1. Brúnið skötuselinn á öllum hliðum í olíu á mjög heitri pönnu.
  2. Lækkið hitann og bætið smjöri, hvítlauk og rósmaríni á pönnuna.
  3. Eftir um 2 mínútur fer fiskurinn í ofninn og er bakaður við 200 °C í um 7 mínútur.

Rótargrænmeti

  • 400 g kartöflusmælki
  • 200 g gulrætur
  • 1 msk. olía
  • 2 msk. smjör
  • 2 msk. fínt skorið dill

Aðferð

  1. Forbakið kartöflusmælkið við 180 °C í um 20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru tilbúnar.
  2. Kælið kartöflurnar og skerið í tvennt.
  3. Skerið gulræturnar í bita og steikið í smjöri við vægan hita þar til þær eru eldaðar í gegn.
  4. Bætið dillinu við áður en blandan er borin fram.

Rjómalöguð sveppasósa með timjan og parmesan

  • 2 msk. smjör
  • ½ msk. olía
  • 300 g sneiddir sveppir
  • Salt og pipar
  • 2 rifnir hvítlauksgeirar
  • 65 ml hvítvín
  • 125 ml fisk- eða grænmetissoð
  • 250 ml rjómi
  • 30 g rifinn parmesan
  • 2 tsk. ferskt timjan

Aðferð

  1. Hitið olíu og smjör á pönnu og steikið sveppina þar til þeir taka á sig fallega gylltan lit, í um 4–5 mínútur. Rétt áður en þeir eru tilbúnir er hvítlauknum bætt saman við ásamt svolitlu salti og pipar. Steikið áfram í um 1 mínútu.
  2. Hellið hvítvíninu á pönnuna og látið malla í um 1 mínútu.
  3. Bætið soði, rjóma og parmesan á pönnuna. Hrærið vel, lækkið hitann aðeins og látið malla við vægan hita í um 2–3 mínútur eða þar til sósan fer að þykkna.
  4. Bætið timjan út í að lokum og smakkið til með salti og pipar.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅