Sýndarmennska í útlendingamálum að mati Snorra
Ákveðið hefur verið að fresta opnun brottfararstöðvar á Íslandi um að minnsta kosti eitt ár, að sögn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins og nefndarmanns í allsherjar- og menntamálanefnd.
Til stóð að hún yrði opnuð í desember á þessu ári en nú er stefnt að opnun ári síðar. Ástæðan er sögð sú að ekki hafi reynst unnt að ljúka undirbúningi stöðvarinnar í tæka tíð.
Snorri gerði frestunina að umtalsefni í hlaðvarpi sínu, Fréttum vikunnar. Hann segir að brottfararstöðin hafi átt að vera „stóra málið í innflytjendamálum á síðasta þingi“ hjá ríkisstjórninni.
Einkennist af sýndarmennsku
Að sögn Snorra virðist ríkisstjórnin vilja gera breytingar í málaflokknum en þær einkennist af sýndarmennsku. Þetta dæmi sanni það vel.
„En síðan er hún ekki nauðsynlegri en svo að það er bara sjálfsagt að fresta henni um heilt ár án þess að nokkur blikki auga. Núna er verið að fresta þessu meinta þjóðþrifamáli sem lá svo á að koma í gegnum þingið.
Þetta verður því ekki að veruleika strax en átti þó að vera þessi ótrúlega áríðandi aðgerð í útlendingamálum, þótt við séum reyndar að benda á margar aðrar miklu meira áríðandi aðgerðir í útlendingamálum,“ segir hann.
Vilja loka hæliskerfinu
Snorri segir Miðflokkinn hafa lagt fram málefnalegar tillögur í útlendingamálum. Flokkurinn vilji meðal annars takmarka dvalarleyfi utan EES og loka hæliskerfinu. Þá þurfi að senda heim fólk sem ekki eigi lengur að vera hér, leggi það ekki sitt af mörkum til samfélagsins, og fylgja því raunverulega eftir.
Flokkurinn vilji fella úr gildi dvalarleyfi sem fengist hafi ólöglega og fara yfir dvalarleyfi í sumum flokkum þar sem vísbendingar séu um að þau hafi verið misráðin.
„Allt þetta sem við erum að leggja til er ekki gert. En það er farið í að gera brottfararstöð,“ segir Snorri.
Það segir hann að sé milljarðaúrræði til lengri tíma og reynslan af því erlendis sé æði misjöfn. Oft dveljist fólk þar mun lengur en til stendur í upphafi og ófremdarástand grípi um sig þegar helsta yfirlýsta hlutverk stöðvarinnar er að hafa fólk til taks á sama stað þegar að brottvísun kemur.
Á sama tíma sé verið að verja þrjátíu milljörðum í nýtt fangelsi og þessum verkefnum hefur hingað til verið sinnt með fangelsisvist.
Flokkurinn vilji taka á rót vandans
Að sama skapi telur Snorri að ekki sé óeðlilegt í þessu sambandi að horfa frekar til þess að fara í samstarf við ríki eins og Danmörku og Þýskaland, sem hafa hafið vinnu við að færa sífellt stærri hluta hæliskerfis síns til þriðja ríkis með nýjum alþjóðasamningum.
„Einmitt svona brottfararstöðvar geta verið hluti af því að menn séu þá bara sendir til útlanda í svona brottfararstöð þar til þeir fara í lögmætan farveg gagnvart sinni brottvísun,“ segir Snorri.
Miðflokkurinn sat hjá við afgreiðslu málsins á Alþingi á sínum tíma og varaði þá við því að verkefnið yrði mikið umfangs á meðan hægt væri að leysa mikinn hluta vandans með áhrifaríkari aðgerðum.
„Það var áhersla okkar í Miðflokknum að taka frekar á rótum hælisleitendakerfisins, vegna þess að svona mál eru aðeins viðbrögð við stjórnleysinu þar,“ segir Snorri.
Hann segir að í fyrsta lagi eigi ekki að taka við umsóknum hér á landi. Í væntanlegu þingmáli boði flokkurinn að verndin fari helst ekki fram hér heldur verði henni útvistað til þriðju ríkja.
„Að einfaldlega loka hælisleitendakerfinu í núverandi mynd. En í staðinn er farið í að búa til fleiri og fleiri milljarðaplástra til þess að mæta áskorunum sem hljótast af þessu gallaða hælisleitendakerfi.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗