Borgin tekur lán til viðhaldsátaks
Tillaga borgarstjóra um að fjármála- og áhættustýringarsviði Reykjavíkurborgar verði veitt heimild til að taka allt að 25 milljónir evra að láni hjá Þróunarbanka Evrópuráðsins, sem jafngildir um 3,4 milljörðum kóna, var samþykkt á fundi borgarráðs á fimmtudag. Með lántökunni verður dregið á lánalínu hjá bankanum, en lánasamningur var gerður við bankann árið 2024 vegna viðhaldsátaks í húsnæði grunnskóla, leikskóla og frístundastarfs.
Í bókun borgarráðsfulltrúa meirihlutans vegna þessa kemur m.a. fram að frá árinu 2023 hafi borgin fjárfest fyrir um 21,6 milljarða í verkefninu, en lántaka hjá Þróunarbankanum nemi hingað til 5,2 milljörðum. Lánasamningurinn kveður á um heimild til lántöku upp á alls 100 milljónir evra.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗