„Ég er örugglega eini Íslendingurinn sem hefur aldrei farið á skíði“

Helga er spennt að takast á við hlutverk Láru í sýningunni Lára og Ljónsi – jólasaga. Ljósmynd/Stefanía Linnet

Helga Salvör Jónsdóttir, 25 ára, tekur við hlutverki Láru af Þóreyju Birgisdóttur í sýningunni Lára og Ljónsi – jólasaga, sem snýr aftur á svið Þjóðleikhússins 6. desember. Helga er fædd og uppalin í Grafarvogi í Reykjavík, eða „G-town“, eins og hún segir sjálf, og útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2025.

Aðspurð hvenær hún hafi smitast af leiklistarbakteríunni segir Helga:

„Ég hef einhvern veginn alltaf vitað að mig langaði að verða leikkona. Ég heillaðist rosalega af sviðinu sem barn, en þegar ég steig fyrst á svið í Leynileikhúsinu opnaðist einhver heimur fyrir mér. Ég var ekki þessi týpíski „athyglissjúki“ krakki eins og svo margir leikarar, heldur mjög feimin. Mig langaði ekkert meira en að fá að leika í stóru barnasýningunum, en ég átti ekki séns! Á unglingsárunum fór svo allt af stað og hér er ég í dag.“

Helga Salvör Jónsdóttir leikkona vill frekar hafa hvít jól en eyða þeim í sólinni. Morgunblaðið/Eyþór

Helga segir það algjöra gjöf að fá að taka við hlutverki Láru.

„Það er yndislegt að vera partur af fyrstu leikhúsupplifun margra barna. Lára er algjör skellibjalla með gríðarlegt ímyndunarafl og mikla sköpunargleði sem eflaust margir krakkar tengja við. Það styttist óðum í að sýningar hefjist og það er mikil spenna. Skrekkurinn er ekki enn kominn, en hann mun láta sjá sig þegar nær dregur, ég efast ekki um það!“

Hún hlakkar til að stíga á svið í jólamánuðinum.

„Ég gæti ekki beðið um skemmtilegri jólamánuð, það er bara þannig. Ég held að þetta verði mikið stuð og það er mikill heiður að fá að skapa fallegar jólaminningar fyrir þau yngstu.“

Áður en við vindum okkur í hraðaspurningarnar: Hvað kemur þér helst í jólaskap?

„Um leið og ég set Baggalút á fóninn kemst ég í fantajólaskap.“

Helga tekur jólakonfekt fram yfir piparkökur.

Helga tekur jólakonfekt fram yfir piparkökur. Morgunblaðið/Arnaldur

Hraðaspurningar með jólabrag

Hvít jól eða jól í sólinni?

„Hvít jól.“

Skautar eða skíði?

„Skautar. Ég er örugglega eini Íslendingurinn sem hefur aldrei farið á skíði.“

Home Alone 1 eða Home Alone 2?

„Home Alone 1.“

Helga elskar að fá gjafir.

Helga elskar að fá gjafir. Ljósmynd/Aðsend

Alvörujólatré eða gervitré?

„Ég er alin upp við gervitré, þannig að það er gervi allan daginn.“

Hvít sería eða marglit sería?

„Hvít sería, engin spurning! Eða þangað til ég eignast börn, þá skal ég kaupa marglita.“

Jólakjóll eða jólanáttföt?

„Úff, ég er mjög mikil kósíkona, en ég vel jólakjólinn fyrir stemninguna.“

Piparkökur eða konfekt?

„Konfekt.“

Þorláksmessuskata eða pítsa?

„Ég mun alltaf borða pítsuna á krakkaborðinu.“

Helga velur skauta fram yfir skíði og segist að öllum líkindum vera eini Íslendingurinn sem hefur aldrei farið á skíði. Morgunblaðið/Eggert

Leikhús eða bíó?

„Leikhús!“

Jólabók eða jólamynd?

„Bæði!“

Gefa gjafir eða fá gjafir?

„Nú, að fá gjafir, auðvitað!“

Home Alone 1 toppar Home Alone 2 að mati Helgu.

Home Alone 1 toppar Home Alone 2 að mati Helgu. Unsplash/Alsu Vershinina

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅