Stórra tíðinda að vænta á Íslandi - Þetta verður líklega niðurstaðan
Helgi Fannar og Hörður Snævar gerðu upp helstu fréttir og leiki í Íþróttavikunni á DV/433.
Mikið er rætt og ritað um nýtt fyrirkomulag í Bestu deildunum. Það fer að styttast í að það komi í ljós hvaða leið verður farin en búist er við að í karladeildinni verði fjölgað upp í 14 lið og upp í 12 kvennamegin.
„Ég held að það sé stutt í það. Ég er búinn að tala við nokkra menn í vikunni og mér heyrist flestir halda að það verði fjölgað í 14 lið.
Það er auðvitað líka kallað eftir því að Lengjudeildin sé að byrja og klárast á svipuðum tíma. Fara menn í 14 lið þar líka?“ velti Hörður upp.
„Það liggur svo beint við að Besta deild kvenna fari í 12 lið,“ skaut Helgi inn í og Hörður telur að sú leið verði farin. „Mér heyrist allir vera þar líka.“
Þátturinn er í spilaranum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗