Snorri Steinn: Mikið spunnið í hann
Snorri Steinn Guðjónsson hvetur sína menn áfram í sigrinum stóra á Úkraínu síðastliðið miðvikudagskvöld. mbl.is/Eyþór
„Hún var bara frábær,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, eftir 48:26-stórsigur íslenska liðsins á því úkraínska í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer í Portúgal, Sviss og á Spáni í byrjun árs 2028. Leikið var í Laugardalshöll síðastliðinn miðvikudag.
Íslenska liðið er mun sterkara en það úkraínska og kom stórsigurinn því ekki á óvart. Spilamennskan gladdi þó Snorra Stein.
„Auðvitað er ákveðinn munur á þessum liðum og við vissum það alveg og sögðum það fyrir fram. En maður vinnur ekkert með 22 mörkum bara af því bara,“ sagði Snorri og hélt áfram:
„Ég vil hrósa strákunum fyrir að mæta einbeittir til leiks og gera þetta vel. Þetta var fagmannleg frammistaða og ég ítreka að það er ekki sjálfgefið að vinna svona stórt. Ég er mjög ánægður,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Bjuggumst ekki við því
Íslenska liðið komst í 9:3 snemma leiks og náði tíu marka forystu í stöðunni 14:4 þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður. Er því óhætt að segja að sigurinn hafi aldrei verið í hættu.
„Já, það er alltaf þægilegt að ná góðu forskoti snemma en við nálguðumst ekkert leikinn þannig og bjuggumst ekkert við því að vaða yfir svona lið. Við vissum að við ættum að vera sterkari en lögðum samt áherslu á að sýna það, sýna ákveðinn standard og gæði.
Það var líka uppselt í Laugardalshöll og það gerir öðrum liðum erfiðara fyrir að mæta okkur,“ sagði hann.
Margir leikmenn fengu að spreyta sig gegn Úkraínu og allir útileikmenn Íslands komust á blað. Snorri var ánægður með að geta rúllað vel á hópi sínum.
„Já, í leikjum sem þróast svona getur maður gert það. Það er kannski erfitt að lesa nákvæmlega í frammistöðu þeirra sem komu inn á.
En aftur, ég lagði áherslu á að við gerðum þetta vel. Við gerðum það í síðustu undankeppni og mér finnst mikilvægt að halda því áfram og sýna að við erum þarna uppi með bestu liðunum. Þá áttu líka að geta unnið svona leiki,“ sagði hann.
Reynir stimplaði sig inn
Reynir Þór Stefánsson kom virkilega vel inn í íslenska liðið í seinni hálfleik, skoraði sex mörk og heillaði. Hann hefur ekki leikið áður á stórmóti en heillaði Snorra þegar rúmir tveir mánuðir eru í HM í Þýskalandi.
„Ég er mjög ánægður með hann. Út á það gengur þetta. Þegar þú færð mínútur þarftu að grípa þær og það er alveg sama hvenær þær eru.
Ég hef fylgst með honum lengi og er ekkert hissa. Það er mikið spunnið í hann,“ sagði Snorri um Reyni og hélt síðan áfram:
„Vissulega er þetta ekki stærsti leikur heims til að spila en þetta er landsleikur í undankeppni, það eru stig í húfi og full Laugardalshöll. Þetta var góð frammistaða og hann stimplaði sig inn.“
Yndislegt að spila hér
Það fer ekki á milli mála að Laugardalshöll er uppáhaldsíþróttahús Snorra, þar sem hann á margar góðar minningar.
„Það er alltaf yndislegt að spila hér og maður hugsar alltaf til þess. Maður var náttúrlega leikmaður en maður var líka polli og dreymdi um þetta.
Það eru forréttindi að þjálfa íslenska landsliðið, ég tala nú ekki um í troðfullri Laugardalshöll. Maður reynir að njóta þess og auðvitað er þægilegt ef þú vinnur góðan sigur,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Eigum að vinna
Næst á dagskrá er útileikur gegn Eistlandi í Tallinn á sunnudag í sömu undankeppni. Snorri vill sjá sitt lið spila vel og ná í önnur góð úrslit á móti liði sem er töluvert lægra skrifað.
„Við tökum endurheimt og undirbúum okkur svo vel fyrir þann leik. Við erum ekki með nægilega mikið efni af þeim og það er fínt að fá leikinn þeirra gegn Serbum.
Við nálgumst Eistana ekkert ósvipað. Við erum að spila á móti liði sem er ekki eins hátt skrifað og við. Við eigum að vinna og ætlum okkur ekkert annað en sigur úti í Eistlandi.
Það er samt strax orðið öðruvísi. Þú ert að spila á útivelli, ekki fyrir framan troðfulla Laugardalshöll, og það kemur ferðalag inn í þetta. Ég geri samt sömu kröfu á okkur fyrir þann leik og þennan, að mæta einbeittir til leiks og sýna að það sé munur á liðunum,“ sagði Snorri.
Ljóst er að Elliði Snær Viðarsson verður ekki með í verkefninu gegn Eistlandi. Teitur Örn Einarsson kemur inn í hópinn og á Snorri ekki von á frekari breytingum.
„Ég veit ekki betur en að allir hafi komist vel frá þessum leik og enginn er laskaður. Við sjáum það betur í vikunni. Að öllu óbreyttu er þetta Teitur sem kemur inn fyrir Elliða.
Viggó var í leikbanni á móti Úkraínu en ég á ekki von á að hann komi með til Eistlands. Hann er að koma til baka eftir meiðsli og verður fínt fyrir hann að jafna sig,“ sagði Snorri.
Meiðsli Viggós eru ekki alvarleg en Snorri vill ekki taka neina óþarfa sénsa með skyttuna.
„Hann er í rauninni enn að koma til baka eftir þessa aðgerð sem hann fór í síðasta sumar. Við erum aðeins að sjá hvað er best að gera,“ sagði hann.
Viktor Gísli sá eini
Eini leikmaður Íslands sem ekki komst á blað gegn Úkraínu var markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson. Meira að segja Björgvin Páll Gústavsson, sem lék seinni hálfleikinn í marki, skoraði eitt mark.
„Þú ert eiginlega bara að segja mér fréttir. Það er eiginlega lélegt hjá Viktori að skora ekki,“ sagði Snorri léttur, áður en hann hrósaði sínum leikmönnum enn frekar.
„Gleymum því ekki að þetta eru leikmenn sem margir komu til landsins á mánudaginn af því að þeir voru að spila með sínum liðum.
Þeir eru að spila aftur á sunnudaginn með okkur og margir hverjir eiga leik á miðvikudag með sínu félagsliði.
Það er álag á þeim og ofan á það koma þessi ferðalög. Það er mjög gott að geta dreift álaginu og ég held að það sé mér, þeim og öllum í hag að ofkeyra engan, ef við förum fram úr okkur og hugsum um janúar,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗