Tólf tímar í þrekbraut fyrir Ljósið

Innlent | mbl | 7.11.2026 | 11:49

Bergur Vilhjálmsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður reynir að safna sem mestu fyrir Ljósið. Ljósmynd/Aðsend

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Bergur Vilhjálmsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður halda í dag þrekdag til styrktar Ljósinu.

Í inntökuferli slökkviliðsmanna þarf að standast þrekpróf sem reynir á þol, styrk, einbeitingu og seiglu, en það er þreytt í sérstakri þrekbraut og eru þeir sem fara hana einu sinni sáttir með það.

Bergur ætlar þó að endurtaka hana í 12 tíma, en í tilkynningu frá slökkviliðinu segir að málefni Ljóssins standi liðinu nærri þar sem krabbamein er einn áhættuþátta þess að starfa sem slökkviliðsmaður.

Bergur byrjaði klukkan 7:20 í morgun og er markmiðið að safna sem mestu fyrir Ljósið en hann stefnir á að fara brautina að minnsta kosti 40 sinnum.

Hægt er að fylgjast með Bergi í beinu streymi á Instagram-reikningi slökkviliðsins.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅