Davíðstíminn: Þarna verður vinkilbeygja á ferli Davíðs Oddssonar

Í kringum einkavæðingu bankanna urðu umskipti á pólitískum ferli Davíðs Oddssonar. Í einkavæðingunni var vikið frá þeirri stefnu sem Davíð hafði sjálfur fylgt fram að því, að eignarhald þeirra skyldi verða dreift, og bankarnir í raun afhentir aðilum sem virðast hafa notast við gagnkvæmar lántökur til að kaupa hlutinn. Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson gáfu á dögunum út bókina Davíðstíminn, þar sem farið er yfir feril Davíðs. Þeir eru gestir Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Mér finnst koma dálítið vel fram í þessari bók að Davíð hafði ekki bara eina hlið. Hann hafði fleiri en eina, sennilega ekki bara tvær, hann hafði margar hliðar. Og þetta er dregið dálítið vel fram í bókinni vegna þess að Davíð náttúrlega verður að foringja og hann sýnir ótvíræða leiðtogahæfileika. og hann er mikill húmoristi og beitir húmornum óspart í sinni pólitík. Þetta kemur vel fram í bókinni.

Reynir: Þetta er húmor og harka sem svona blandast saman og það er eins og með einkavæðinguna að Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ og stjórnarformaður í Glitni, þeir fá þá hugmynd, bankaráðið, að þeir ætla að bjóða í Landsbankann þegar búið er að auglýsa hann.

Það koma skilaboð úr stjórnarráðinu um að þetta verði ekki leyft, að þeir bjóði í Landsbankann, Íslandsbanki, og þá er ákveðið að bankaráðinu að senda Val Valsson bankastjóra og Kristján Ragnarsson bankaráðsformann á fund Davíðs til að reyna að róa leikinn. nema að það verður úr að Kristján fer einn með þessa samþykkt bankaráðsins á bakinu og þar gustaði nú heldur betur. Það er eins og talað er um, það er bara hárblásarinn á Kristján sem var nú hörkutól, að vísu grátgjarnt hörkutól.“

Já, hann hafði ákveðna taktík svona.

„Já, já, grátkórinn, en hann kemur til baka bara bugaður maður og segir við bankaráðið: „Við verðum að afturkalla þessa samþykkt, við verðum að afnema hana af því að þetta er ekki leyft.“ Og svo þekkja menn framhaldið, það er, Björgólfarnir fengu Landsbankann og svo fékk S-hópurinn Búnaðarbankann og menn skiptust á lánum og allt þetta. Þarna verður einhver beygja á ferlinum, vinkilbeygja.“

Já. Er það svona niðurstaða að það hafi í kringum þetta, kringum einkavæðingu bankanna, hafi orðið einhver svona umskipti á ferli Davíðs Oddssonar?

Jón Trausti: „Já, það urðu umskipti, við fylgjum eftir hugsjónum þessa hóps sem stundum hefur verið kallaður Eimreiðarhópurinn og samanstendur af ungum og býsna frambærilegum frjálshyggjumönnum. Allt frá því að Davíð er í Menntaskólanum í Reykjavík og hann verður sem sagt inspector scholae, formaður nemendafélagsins. Við af honum tekur Geir H. Haarde og síðan fylgja þeir sínum hugsjónum eftir sem eru, myndi ég segja, mjög verðugar hugsjónir á tímum þar sem að sumir andans menn á Íslandi eru að fylgja Sovétríkjunum að málum, og verja einhvern veginn þá útfærslu kommúnismans sem er til og þeir tefla sér í rauninni andspænis því. Grunnhugsjón frjálshyggjunnar er í rauninni, eins undarlega og það kannski hljómar, einhver svona jafnræðis hugsjón, þ.e.a.s. þeir vildu dreifa valdi, þeir vildu dreifa þekkingu og leiðin til þess var að dreifa eignum sem voru samþjappaðar hjá ríkinu til almennings, almennings innan gæsalappa. Þannig að það var alltaf á kristaltæru hjá þeim að bæði þegar Hannes Hólmsteinn talaði eða skrifaði og Davíð Oddsson að þeir vildu færa eignir ríkisins í dreift eignarhald. Valdasamþjöppunin var andstæð markmiðum þeirra. Síðan breytist það og menn fara að sýna miklu meiri ásókn í völd sjálfir, verður einhver svona freistnivandi.

Bæði sést þetta gagnvart RÚV og svo náttúrlega gagnvart fjölmiðlunum. Ég tek sem dæmi að Hannes Hólmsteinn Gissurarson var á þeirri skoðun á tíunda áratugnum að það skipti mjög miklu máli að fjölmiðlar, sem sagt að það myndi ekki þjappa saman eignarhaldi á fjölmiðlum, að samkeppnishömlur, sem sagt að það yrði beitt aðferðum Samkeppniseftirlits gagnvart fjölmiðlum enn frekar en öðru. Og þar nefndi hann sérstaklega andstöðu Morgunblaðsins við kvótakerfið, að það væri alvarlegt mál og þarna þyrfti að passa upp á fjölmiðlana. Og svo spólum við tvo áratugi áfram og þá er einmitt sama Morgunblað komið í hendurnar á þeim sem eiga náttúruauðlindirnar og niðurgreitt ár eftir ár þannig að það er mjög áhugavert að fylgjast með þessum kontröstum, hvernig hugsjónir kvarnast og þær fara svona að taka á sig breytta mynd og breytast jafnvel í andstæðu sína.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅