Þetta er svona „slakir en reddí“
Viktor Gísli Hallgrímsson og Janus Daði Smárason, leikmenn handboltaliðs Barcelona, segja kröfurnar miklar þar á bæ en félagið hefur unnið spænsku deildina 16 tímabil í röð og er langsigursælasta lið landsins.
– Er titli fagnað hér eða er einfaldlega ætlast til þess að þið vinnið – finnið þið fyrir því að það séu gerðar kröfur til ykkar?
„Klárlega – kröfurnar eru miklar,“ svarar Viktor. „Mér finnst þetta sérstaklega flókið í spænsku deildinni, þar sem búist er við sigri og menn kannski frekar slakir fyrir leik. Þetta er öðruvísi en íslenska geðveikin þar sem allir eru stöðugt að ofpeppast. Maður er kannski ekki alveg í toppformi en þarf samt að leika vel og vinna. Í Barcelona er þetta svona „slakir en reddí“-dæmi. Ég þurfti að aðlagast því fyrstu mánuðina hérna. Það er líka flókið að það mæta ekkert alltof margir á heimaleikina hjá okkur. Í meistaradeildinni er orkan meiri og fleiri áhorfendur, sérstaklega þegar þekkt lið koma.“
Janus kinkar kolli. „Maður vill alltaf meira og svo er maður búinn að spreyta sig á stærsta sviðinu og þarf allt í einu að fara í litla höll með fáum áhorfendum og minni ákefð. En við verðum að vinna af því að við erum Barcelona. Ég held að allir leikmenn þurfi að venjast því. Áhorfendurnir eru náttúrlega vanir svo miklum árangri, ekkert síður en í körfuboltanum og fótboltanum.“
Þeir segja handboltann ekki njóta sömu athygli í Barcelona og í þýskum handboltabæjum þar sem allir mæta á leiki.
„Já, það eru ekki skilti í miðbæ Barcelona sem auglýsa leikinn okkar. Það væri þá frekar fótboltinn og kannski körfuboltinn. Við erum bara með okkar fólk sem mætir alltaf og örfáir Norðurlandabúar í fríi sem þekkja einhvern handboltamann,“ segir Viktor.
Ítarlega er rætt við Viktor og Janus í Sunnudagsblað Morgunblaðsins en þeir voru heimsóttir á æfingu í Barcelona.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗