Tveir sundlaugargestir létust af völdum raflosts
Tveir létust nýlega af völdum raflosts þegar þeir voru í sundlaug á fimm stjörnu hóteli í Bengaluru á Indlandi.
Annar hinna látnu var starfsmaður þýska flugfélagsins Lufthansa og hinn var starfsmaður IBM. The Independent skýrir frá þessu og segir að hinir látnu hafi báðir verið gestir á Conrad hótelinu þegar þeir hafi farið í laugina, sem er á þriðju hæð hótelsins, til að synda.
Lögreglan segir að hinir látnu hafi verið Alexander Maximilian Theiss, 57 ára þýskur starfsmaður Lufthansa, og Juraj Horvat, 45 ára slóvakískur starfsmaður IBM.
Tveir slösuðust þegar þeir reyndu að bjarga mönnunum úr lauginni. Annar er 41 árs Bandaríkjamaður, sem var gestur á hótelinu, og hinn er 28 ára starfsmaður hótelsins.
Indverskir fjölmiðlar segja að mennirnir hafi fengið straum þegar þeir voru að reyna að fara upp úr lauginni og hafi drukknað í framhaldi. Einnig segja indverskir fjölmiðlar að talið sé að stjórnendur hótelsins hafi vanrækt viðhald á sundlauginni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗