Opin fyrir aukinni viðveru hermanna á Íslandi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur ekki þörf á varanlegri viðveru bandaríska hersins. mbl.is/Karítas

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist opin fyrir aukinni viðveru hermanna á Íslandi sem hluta af þeim vörnum NATO sem við njótum hér á landi.

Þetta sagði hún í viðtali við bresku fréttastofuna Bloomberg í gær.

Hún sagðist þó ekki telja þörf á að koma aftur á varanlegri viðveru bandarísks herliðs á landinu, en skiptiviðvera herliðs bandalagsríkja nægi til að tryggja öryggi á tímum umróts í alþjóðastjórnmálum.

„Við erum mjög opin fyrir því að sjá fleiri hermenn á Íslandi sem hluta af þeirri regnhlíf NATO sem við njótum, svo ég tel að við séum ekki komin á þann stað að við þurfum varanlega viðveru,“ sagði Kristrún í viðtalinu þegar hún var spurð hvort herstöðin í Keflavík gæti einhvern tímann aftur hýst bandaríska hermenn.

Viðleitni Trump til yfirráða á Grænlandi verið erfið

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsótti Ísland í seinasta mánuði og gaf til kynna vilja til að efla samstarf ríkjanna tveggja, meðal annars á sviði varnarmála, en sagði Kristrún Ísland halda áfram að skoða fleiri samninga og aukið samstarf við Bandaríkin.

Þótt Ísland hafi átt í „stöðugu samstarfi“ við Bandaríkin á undanförnum árum hafi viðleitni Donalds Trump forseta til að ná yfirráðum yfir Grænlandi verið erfið fyrir landið, sagði Kristrún.

„Ljósi punkturinn er sá að þetta hefur aukið athyglina á norðurslóðum,“ sagði hún. Samningurinn sem Bandaríkin, Grænland og Danmörk undirrituðu „sýndi að margt er í gangi, ekki bara í öryggismálum heldur einnig í fjárfestingum.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅