Hafa aðeins fengið 1,7% af fjármunum
Ekki er ráðgert að frekari framkvæmdir verði fyrr en eftir 2030. Sveitarfélög á Suðurnesjum eru ósátt við þá forgangsröðun. mbl.is/Árni Sæberg
„Ég verð að gangast við því að þetta var pínu áfall,“ segir Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Nýlegt minnisblað frá Vegagerðinni, sem tekið var saman fyrir innviðaráðuneytið, sýnir að aðeins brot af þeim fjármunum sem farið hafa í nýfjárfestingar í vegakerfi landsins síðustu tíu ár runnu til verkefna á Suðurnesjum.
Minnisblaðið sýnir að á árunum 2015-2025 var 160 milljörðum króna varið til nýfjárfestinga en af þeim runnu aðeins 2,7 milljarðar til Suðurnesja. Það jafngildir 1,7% af heildarfjárhæðinni
og er langlægsta hlutfall allra landshluta.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗