Byggingarfulltrúi aðhafðist ekkert þrátt fyrir athugasemdir slökkviliðsins

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi þá ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar að aðhafast ekkert vegna meintrar ósamþykktrar viðbótaríbúðar í tvíbýlishúsi. Vísar nefndin meðal annars til þess að fyrir hafi legið athugasemdir frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en þrátt fyrir það hafi byggingarfulltrúi ekki kannað málið nánar og hafnað því að grípa til aðgerða.

Það voru börn látinnar konu, sem átti íbúð á efri hæð hússins, sem kærðu ákvörðun byggingarfulltrúans bæði í eigin nafni og fyrir hönd dánarbús móður sinnar, sem er skráður eigandi íbúðarinnar.

Samkvæmt fasteignaskrá er húsinu skipt í íbúð á efri hæð og ósamþykkta kjallaraíbúð. Í skoðunarskýrslu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá í ágúst 2025 voru gerðar athugasemdir við brunavarnir í kjallaraíbúðinni og kom fram að aðaluppdráttur gerði ekki ráð fyrir að þar væru tvær íbúðareiningar en ætla mætti að íbúðinni hafi verið skipt í tvær notkunareiningar.

Byggingarfulltrúi fór þá fram á skýringar frá eiganda kjallaraíbúðarinnar sem svaraði að bragði að engar leyfisskyldar framkvæmdir hefðu farið fram og að íbúðinni hefði ekki verið skipt upp í tvær einingar. Þá hefði verið brugðist við athugasemdum um brunavarnir og flóttaleiðir. Var einnig vísað til leigusamnings sem sýndi fram á að um eina íbúðareiningu væri að ræða.

Auglýsingar

Í vor óskaði deild afnota og eftirlits hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar eftir því við eiganda kjallaraíbúðarinnar að „fyrirkomulag húsnæðis“ fengist skoðað í húsaskoðun. Í svari eiganda íbúðarinnar frá í maí 2026 var bent á að eldvarnareftirlitið teldi úrbætur vegna neyðarúrganga fullnægjandi og hefði lokið málinu af sinni hálfu. Fyrir lá bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til hans, frá apríl 2026, þar sem fram kom að úrbætur á eldvörnum væru nægilegar til að ekki yrði aðhafst frekar.

Fyrir lá leigusamningur frá árinu 2026 um kjallaraíbúðina. Einnig lágu fyrir gögn sem frá kærendum þar sem auglýstar voru tvær íbúðir í kjallara hússins. Munu þessar auglýsingar vera frá árunum 2020 og 2021.

Í ákvörðuninni um að byggingarfulltrúi myndi ekki aðhafast frekar var vísað til þess að samkvæmt eiganda kjallaraíbúðarinnar hafi engar leyfisskyldar framkvæmdir farið fram í íbúðinni. Stofunni væri ekki lengur skipt upp í tvö rými og íbúðinni ekki skipt upp, samkvæmt leigusamningi. Með vísan til þessa og þar sem slökkviliðið hefði lokið málinu þar sem gerðar hefðu verið úrbætur á brunavörnum myndi byggingarfulltrúi ekki aðhafast frekar vegna málsins að svo stöddu.

Kæra

Lögðu systkinin þá fram kæru til kærunefndar umhverfis- og auðlindamála.

Var í kærunni m.a. vísað til ákvæða laga og reglugerða um eftirlitshlutverk byggingarfulltrúa.

Vildu systkinin meina að kjallaraíbúðinni hefði verið skipt varanlega upp í tvær sjálfstæðar notkunareiningar. Í þeim tilgangi hafi votrýmum verið fjölgað, lokað hafi verið fyrir aðgang eiganda efri hæðar að sameiginlegri rafmagnstöflu hússins, sameiginlegri lagnagrind og vatnsinntaki í kjallara. Framkvæmdirnar hafi hvorki hlotið samþykki sameigenda né hafi verið gefið út byggingarleyfi fyrir þeim og væri því um óleyfisframkvæmd að ræða. Var vísað til þess að byggingarfulltrúa bæri að upplýsa mál nægilega vel áður en ákvörðun væri tekin. Skýringar eiganda kjallaraíbúðarinnar til byggingarfulltrúa væru ekki studdar öðrum gögnum en óundirrituðum leigusamningi. Auglýsingar á samfélagsmiðlum, þar sem leitað hafi verið leigjenda, frá árinu 2020 og 2021 gæfu til kynna að íbúðinni hafi verið skipt í tvær notkunareiningar. Þá væri það byggingarfulltrúi en ekki slökkviliðið sem færi með eftirlit með byggingarframkvæmdum.

Rannsókn

Í andsvörum Reykjavíkurborgar kom fram að byggingarfulltrúi hafi rannsakað málið í framhaldi af skýrslu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins þar sem fram hafi komið að ætla mætti að íbúðinni hafi verið skipt upp í tvær notkunareiningar. Kallað hafi verið eftir skýringum frá eiganda íbúðarinnar sem hafi hafnað því að henni hafi verið skipt upp og upplýst að bætt hafi verið úr brunavörnum. Fyrir hafi legið leigusamningar þar sem húsnæðið hafi verið skilgreint sem ein íbúð.

Að teknu tilliti til þessara upplýsinga, meðalhófs og almannahagsmuna hafi það verið mat byggingarfulltrúa að ekki væru forsendur fyrir beitingu úrræða. 

Það hafi ekki verið sýnt fram á að þetta mat hafi byggst á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum eða að rannsóknarskylda hafi verið vanrækt.

Eigandi kjallaraíbúðarinnar kom á framfæri þeim athugasemdum að að ekki hafi verið ráðist í leyfisskyldar framkvæmdir eða breytingar á íbúðinni, en gerðar hafi verið endurbætur á henni eftir árið 2020. Leigusamningar vegna íbúðarinnar væru undirritaðir og sæist á þeim að um eina íbúð væri að ræða. Bæði lagnagrind og rafmagnstafla væru staðsettar innan íbúðarinnar. Samkvæmt lögum um fjöleignarhús væri eiganda séreignar, þar sem sameiginleg lagnagrind og rafmagnstafla væru staðsettar, skylt að veita húsfélagi eða fagaðilum á þess vegum aðgang að íbúðinni til eftirlits og viðhalds á þessum sameiginlega búnaði, þó með hæfilegum fyrirvara. Aldrei hafi staðið á því að slíkur aðgangur yrði veittur.

Systkinin bentu á móti á að þrátt fyrir að byggingarfulltrúi kynni að hafa svigrúm til að meta hvort tilefni væri til aðgerða yrði ákvörðun að vera reist á fullnægjandi gögnum og málefnalegum rökum. Leigusamningur sannaði ekki að um eina íbúð væri að ræða, enda væri fasteignin með eitt fastanúmer. Á auglýsingum vegna íbúðaeininganna frá árunum 2020 og 2021 sæist glögglega að þær væru tvær. Málið snerist um það hvort íbúðinni hafi verið skipt upp í tvær notkunareiningar án leyfis byggingaryfirvalda og án samþykkis sameiganda. Þessi atriði hafi byggingarfulltrúa borið að taka til sjálfstæðrar skoðunar fyrir töku ákvörðunarinnar.

Ógilding

Í niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála segir að ákvörðun byggingarfulltrúa um að aðhafast ekki frekar í málinu hafi verið rökstudd með því að samkvæmt þinglýstum eiganda hefðu engar leyfisskyldar framkvæmdir farið fram, íbúðinni væri ekki skipt upp og úrbætur hefðu verið gerðar á brunavörnum.

Nefndin segir að með þessu hafi verið horft hjá þeim gögnum sem um sumt hafi bent til annars og þá einkum ljósmynda og umfjöllunar í skoðunarskýrslu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, frá ágúst 2025. Tilefni hafi verið til nánari athugunar við þessar aðstæður þannig að álíta yrði að rannsókn málsins hafi verið áfátt. Því yrði ekki komist hjá því að fallast á kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar að aðhafast ekki frekar í málinu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅