Ísól grefur upp tímalausa fjarsjóði

Pilsið er frá Munthe, peysan frá Ginu Tricot. Veskið frá Kenneth Cole keypti Ísól notað. Ljósmynd/Aðsend

Ísól Rut Reynisdóttir byrjaði ung að vinna í tískufataverslunum og þar kviknaði áhuginn á tísku. Í dag starfar Ísól sem markaðsfulltrúi í Kringlunni.

„Mér finnst stíllinn alltaf vera í þróun og getur tekið breytingum eftir því hvaða maður er staddur í lífinu hverju sinni, en mér finnst alltaf vera einhver ákveðinn grunnur sem endurspeglar mann sjálfan,“ segir Ísól. 

Hvernig myndir þú lýsa fatastílnum þínum?

„Ég myndi líklega lýsa stílnum mínum sem skandínavískum stíl. Mér finnst mikilvægt að líða vel í fötunum sem ég klæðist og ég sæki mikið í klassískar flíkur en finnst skemmtilegt þegar þær hafa eitthvað sérstakt, til dæmis áhugavert snið, öðruvísi ermar eða kraga. Ég held mikið upp á flíkur sem eru tímalausar í grunninn en hafa þó karakter.“

Ísól er hér í úlpu frá Rodebjer. Veskið er frá Opera Sport sem Ísól keypti notað. Ljósmynd/Aðsend

„Efnisval skiptir mig líka máli og ég hallast meira að náttúrulegum efnum. Fyrir nokkrum árum ákvað ég að byggja fataskápinn minn smám saman upp á nýtt, með áherslu á gæði og náttúruleg efni. Síðan þá hef ég verið að bæta við flíkum sem ég veit að ég mun eiga og nota lengi og reyni að forðast gerviefni eins og ég get.

Ég hef meðal annars fundið margar fallegar gæðaflíkur í Hringekjunni, á Regn-appinu, í Rauða krossbúðinni í Kringlunni, á Visteyri ásamt verslunum erlendis sem eru með notaðar merkjavörur. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt að finna svona gersemar og blanda þeim saman við nýjar flíkur.

Mér finnst líka gaman að bæta við alls konar fylgihlutum og breyta aðeins til. Ég gríp oft í Ból-ullarsjalið mitt og aðra fylgihluti frá Farmers Market, leðurkraga og cuffs frá Feld eða ullarponsjó frá By Malene Birger, finnst það gera outfittið aðeins meira spennandi og er fullkomið á kaldari dögum. Mér finnst þetta skemmtileg leið til að byggja upp fataskáp sem er persónulegur og fjölbreyttur, án þess að þurfa alltaf að kaupa nýtt.“

Ísól keypti hörjakkann, kjólinn og töskuna frá Guess notað. Skórnir eru frá Vagabond. Ljósmynd/Aðsend

Ennisbandið er frá Feldi. Ísól er dugleg að grafa upp gullmola. Sólgleraugun eru frá Gucci. Hún fann einnig jakkan notaðan sem og kasmírpeysuna sem er frá Charlotte Spare. Taskan er frá Prada og er notuð. Ljósmynd/Aðsend

Finnst gaman að vera fín

Hvert sækir þú innblástur?

„Pinterest er líklega sá miðill sem ég sæki mestan innblástur á, en ég fylgist líka með skandínavískum áhrifavöldum á Instagram og fæ stundum innblástur á TikTok.“

Ísól er hrifin af íslenska merkinu Feld. Hér er hún með fylgihluti frá merkinu. Hún er einnig í grænum flauelsjakka frá Zöru og í buxum frá Mango. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega?

„Á virkum dögum í vinnunni gríp ég mikið í skyrtur, peysur og skemmtilega jakka sem ég para yfirleitt við suit-buxur eða gallabuxur. Mér finnst líka flott að vera í kjól yfir buxur, bæði dagsdaglega og þegar ég fer eitthvað fínt. Eins og ég nefndi áður nota ég mikið fylgihluti, eins og ullarklúta, ponsjó og fylgihluti frá Feldi. Mér finnst gaman að vera fín til fara og pæla í því hvernig ég blanda flíkunum saman en þægindin skipta mig líka miklu máli.“

Ísól klæðis gjarnan dragtarbuxum við flotta jakka í vinnunni. Þessar buxur eru frá Herskind og eru úr Fou22. Jakkann keypti hún hins vegar notaðan. Fylgihlutirnir eru frá Feld. Ljósmynd/Aðsend

Ponjó eru í miklu uppáhaldi hjá Ísól. Þetta ponjó er frá Mala Alisha og er úr ull en ponsóið fann hún notað. Skyrtan er frá Ralph Lauren og hana keypti Ísól einnig notaða. Buxurnar eru svo frá Mango. Ljósmynd/Aðsend

En þegar þú ferð eitthvað fínt?

„Mér finnst skemmtilegt að klæða mig upp þegar ég fer eitthvað fínt og velja flíkur sem fá sjaldnar að njóta sín. Ég byrja yfirleitt á einni flík sem mig langar að klæðast, hvort sem það er kjóll, jakki, toppur, buxur eða pils, og vel svo restina út frá henni.“

Ísól er dugleg að klæðist gjarnan kjólum eða pilsum yfir buxur. Hér er hún í jakk frá Stand Studio, Boii kjól og buxum frá Envii. Ljósmynd/Aðsend

Elskar flotta jakka

Hvað færðu ekki nóg af?

„Ég á marga einstaka jakka sem ég hef keypt notaða og mér þykir vænt um því ég fann þá sem gerir þetta enn þá meira sérstakt. Ég á til dæmis jakka úr kasmír og ull sem ég fann fyrir nokkrum árum. Hann er með mjög fallegu sniði og sérstaklega kraga og mér þykir einstaklega vænt um hann, bæði vegna þess að hann er mjög fallegur og vandaður, en líka vegna þess að það á enginn annar eins. Sem er það skemmtilega við þetta.“

Ísól á marga einstaka jakka. Þennan Karen Millen-jakka var notaður þegar hún fann hann. Ljósmynd/Aðsend

Er alltaf með skartgripi

Áttu uppáhalds skartgripi?

„Ég nota daglega Cape of Feathers-eyrnalokka frá Vera Design og silfurhringa frá Jens.“

Ísól gerði góð kaup þegar hún keypti þennan Stine Goya kjól notaðan. Við kjólinn er hún hælaskóm frá Karen Millen sem höfðu einnig átt fyrri eiganda. Ljósmynd/Aðsend

Er eitthvað á óskalistanum fyrir veturinn?

„Efst á óskalistanum mínum er Crystal Drottning-línan frá Vera Design í silfri og marglitum steinum. Mér finnst settið einstaklega fallegt, ekki síst hvað steinarnir eru í fallegum litum og hvernig þeir glitra. Ég sá líka á síðunni þeirra að línan er í takmörkuðu upplagi, sem gerir hana enn meira heillandi. 

Á listanum mínum eru líka meðal annars alpaca- og merinóullarherrasjal frá As We Grow sem ég sá í Hrím, kasmírklútur frá Guest In Residence sem fæst í Mathilda og hárilmvatn frá Balmain,“ segir Ísól. 

Ullarponjóið frá Melene Birger er í miklu uppáhaldi hjá Ísól.

Ullarponjóið frá Melene Birger er í miklu uppáhaldi hjá Ísól. Ljósmynd/Aðsend

Ísól keypti þennan kjól frá íslenska merkinu Anderson & Lauth notaðan. Veskið keypti hún einnig notaðan. Jakkinn og buxurnar eru úr Mango. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅