Banna taívönskum flugfélögum að fljúga í pakistanskri lofthelgi

Pakistan varð nýlega fyrsta ríki heims til að loka lofthelgi sinni fyrir taívönskum flugfélögum. Þetta þýðir að taívönsk flugfélög verða að taka sveig fram hjá pakistanskri lofthelgi og þar með verða flugferðirnar lengri.

The Independent skýrir frá þessu og segir að pakistönsk stjórnvöld hafi gert þetta til að þóknast „Eitt Kína“ stefnu kommúnistastjórnarinnar í Peking.

Pakistan er náið bandalagsríki nágrannanna í Kína. Pakistönsk stjórnvöld staðfestu bannið eftir að það fór að spyrjast út að taívönsk flugfélög væru farin að fljúga lengri leiðir til að forðast pakistanska lofthelgi.

„Loftferðayfirvöld fylgja Eitt Kína stefnunni, aðeins kínverska meginlandið er leyft,“ sagði Khawaja Asif, varnarmálaráðherra, í samtali við Bloomberg News.

Kommúnistastjórnin í Pekin lítur á lýðræðisríkið Taívan sem óaðskiljanlegan hluta af Kína en því eru Taívanar ekki sammála og vilja flestir halda áfram að vera sjálfstætt lýðræðisríki.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅