Greindu umræðuna á lokadegi ráðstefnu

Bergur Ebbi otar hljóðnema að gestum og býður þeim að taka þátt. Með honum stýrði umræðum Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir. mbl.is/Karítas

Forskotið fylgir fiskinum sagði í yfirskrift Sjávarútvegsráðstefnunnar 2026 sem lauk í gær.

Ráðstefnan var nú haldin í fjórtánda sinn og margt um manninn í Hörpu báða dagana þar sem fram fór fjöldi málstofa um ólíka þætti í starfsumhverfi sjávarútvegs á Íslandi.

Málstofurnar áttu það þó sammerkt að taka mið af yfirskriftinni og miðuðu velflestar að því að nálgast hvernig treysta mætti samkeppnisforskot íslensks sjávarútvegs með það að markmiði að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfni greinarinnar.

Gilti þá einu hvort fjallað væri um hliðarstrauma, rekjanleika afurða, nýsköpun, sölu og markaðssetningu, samninga um deilistofna, rannsóknir í sjávarútvegi, mikilvægi vinnslu á heimaslóð eða framtíðina og forystu og ímynd greinarinnar.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅