Tveir stærstu flokkarnir hnífjafnir
Tveir stærstu flokkar Nýja-Sjálands voru hnífjafnir í þingkosningum þar í landi fyrr í dag þegar meira en helmingur atkvæða hafði verið talinn en hvorugur flokkurinn hafði tryggt sér hreinan meirihluta.
Nýsjálendingar hafa átt erfitt með að ná endum saman þar sem verð á nauðsynjavörum er enn þrálátlega hátt og atvinnuleysi það mesta í meira en áratug, en kosningabaráttan einkenndist af áhyggjum af hækkandi framfærslukostnaði og efnahagsmálum.
Hefur stríðinu í Mið-Austurlöndum og hækkun á eldsneytusverði sem því fylgdi á heimsvísu verið kennt um það áfall sem viðskiptaháð hagkerfi Nýja-Sjálands hefur orðið fyrir.
Loforð um „enga nýja skatta“
Christopher Luxon forsætisráðherra vonaðist til þess að hægrisinnuð samsteypustjórn hans gæti haldið völdum eftir loforð um „enga nýja skatta“, eftir þrjú stormasöm ár í embætti.
Á kosningavöku Verkamannaflokksins í Upper Hutt nálægt Wellington, sem skreytt var rauðum blöðrum, voru flokksmenn hljóðlega sannfærðir um að þeir hefðu tryggt sér flest þingsæti.
Og á samkomu Þjóðarflokksins í Auckland brutust út fagnaðarlæti meðal viðstaddra þegar sýnt var að frambjóðendur þeirra væru í forystu.
Staðan tvísýn að sögn ráðherra
Mark Mitchell, lögregluráðherra og þingmaður Þjóðarflokksins, sagði við fréttamenn að staðan væri „mjög tvísýn“.
„Þegar litið er til þess sem er að gerast í heiminum sjáum við svo sannarlega mikla óvissu í alþjóðastjórnmálum,“ sagði hann.
„Ég held að miðað við að við höfum stjórnað í gegnum það tímabil stöndum við okkur í raun nokkuð vel.“
Báðir flokkar með 29%
Klukkan 21:44 að staðartíma, þegar meira en helmingur atkvæða hafði verið talinn, voru flokkarnir báðir með 29 prósent atkvæða og aðeins nokkur þúsund atkvæði skildu þá að, en hvorugum er spáð nægilega mörgum þingsætum á nýsjálenska þinginu til að geta stjórnað einn.
Athygli hefur verið beint að smærri flokkum landsins, einkum nýliðanum á miðjunni, Tækifærisflokknum (Opportunity Party), en samkvæmt blönduðu kosningakerfi þurfa kjósendur að merkja við tvennt: almennan flokkslista og einstakan frambjóðanda sem fulltrúa kjördæmis síns.
Tækifærisflokkurinn sækir í sig veðrið
Fyrstu tölur bentu til þess að Tækifærisflokkurinn fengi yfir fimm prósent, sem er þröskuldurinn sem þarf til að fá þingsæti án þess að vinna kjördæmi, sem myndi líklega tryggja flokknum oddastöðu við myndun næstu ríkisstjórnar.
Flokknum stýrir Qiulae Wong, fyrrverandi ráðgjafi hjá KPMG, sem hefur heitið mildari og vinsamlegri stjórnmálum og sagst geta unnið með hverjum þeim flokki sem fær flest þingsæti.
„Þið hafið kosið samstöðu fram yfir sundrungu,“ sagði hún þegar atkvæðatölurnar streymdu inn.
David Capie, prófessor við Victoria-háskólann í Wellington, sagði að þreyta kjósenda á rótgrónu flokkunum tveimur ýtti undir uppgang Wong.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗