Fær að mæta aftur til vinnu eftir gott djamm
Jack Grealish er á leið aftur til æfinga hjá Everton eftir að David Moyes, knattspyrnustjóri liðsins, setti hann út í kuldann vegna agabrots.
Grealish, sem er 31 árs, hefur misst af þremur leikjum í röð eftir að hafa ekki mætt á æfingu í síðustu viku. Starfsmenn Everton áttu jafnframt í erfiðleikum með að ná sambandi við leikmanninn.
Samkvæmt enskum fjölmiðlum hafði Grealish verið úti að skemmta sér tvö kvöld í röð skömmu áður en hann var settur út úr hópnum.
Englendingurinn mun nú fylgja sérstöku æfingaprógrammi til að komast aftur í leikform og gæti snúið aftur á æfingar með aðalliðinu í landsleikjahléinu.
Moyes gæti því haft Grealish til taks þegar Everton mætir Brentford eftir landsleikjahléið.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗