Gæti stoppað stutt hjá Aston Villa - Fjöldi stórliða sýnir áhuga

Japanski markvörðurinn Zion Suzuki hefur vakið athygli nokkurra af stærstu félögum Evrópu eftir góða frammistöðu með Aston Villa.

Samkvæmt Teamtalk hafa bæði Real Madrid og Paris Saint-Germain sýnt hinum 24 ára gamla markverði áhuga.

Þá eru Arsenal, Liverpool, Manchester City og Tottenham einnig sögð fylgjast grannt með stöðu Suzuki hjá félaginu.

Suzuki gekk til liðs við Aston Villa síðasta sumar og hefur því aðeins verið hjá félaginu í nokkra mánuði.

Frammistaða hans hefur þó þegar vakið mikla athygli og gæti Aston Villa þurft að berjast við að halda honum ef stórliðin ákveða að láta til skarar skríða á næstu mánuðum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅