Ítalinn sem reif metbækurnar í tætlur
Tvítugur Ítali, Kimi Antonelli, reif metbækurnar í tætlur þegar hann varð yngsti heimsmeistarinn í Formúlu 1 um síðustu helgi; hann undirstrikaði yfirburði sína með því að tryggja sér titilinn þótt enn eigi eftir að aka fjórar keppnir á tímabilinu.
„Sú pæling að sigra hvað sem það kostar – að vera eigingjarn, tækifærissinnaður og miskunnarlaus í eigin þágu – sú tegund kappaksturmanns er liðin undir lok. Við eigum nýjan meistara sem stendur fyrir gildi á borð við auðmýkt, heilindi, tryggð og virðingu. Hann er einfaldlega hann sjálfur. Hann ætti að vera fyrirmynd fyrir marga aðra unga ökumenn.“
Þannig komst Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes, að orði í breska blaðinu The Guardian eftir að Kimi Antonelli hafði tryggt sér heimsmeistaratitilinn.
„Hann ætti að vera fyrirmynd fyrir þá fáu ökumenn í Formúlu 1 sem telja sig eiga rétt á öllu. Þá sem kvarta endalaust í talstöðinni og þá sem lenda í árekstrum. Lítið á þennan tvítuga strák og hugleiðið síðan hvað þið getið gert til að bæta ykkur. Það eru skilaboðin til þessara stráka.“
Wolff nefndi engin nöfn en taki þeir til sín sem vilja.
Yngstur í sögunni
Kimi Antonelli er yngsti heimsmeistarinn í sögu Formúlu 1 og fyrsti Ítalinn síðan 1953.
Þessi tvítugi Ítali kom Mercedes-bíl sínum í verðlaunasæti í sextánda sinn á tímabilinu. Hann sýndi blöndu af áræði og fagmennsku sem bar vott um meiri þroska en aldur hans gefur til kynna.
„Takk kærlega, okkur tókst það,“ sagði hann með tár í augunum í talstöð liðsins eftir að hann kom í mark og hinn virti keppnisverkfræðingur liðsins, Peter Bonnington, svaraði að það væri „ánægja að hafa farið í þessa vegferð með þér, en þetta er bara fyrsti kaflinn“.
Antonelli náði fljótt aftur valdi á tilfinningum sínum og eftir að hafa þakkað fjölskyldu sinni og Mercedes bætti hann við: „Okkur tókst það. Ég er svo þakklátur fyrir þessa stund – og hún mun lifa með mér að eilífu. Ég er orðlaus; er bara að reyna að átta mig á því sem hefur gerst.“
Nánar er fjallað um Kimi Antonelli í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗