Handtekinn við Hvíta húsið: Ætlaði að myrða Trump

Hvíta húsið í Washington.

Hvíta húsið í Washington. AFP/Mandel Ngan

Vopnaður maður var handtekinn skammt frá Hvíta húsinu í Washington á fimmtudagskvöld eftir að hann sagði lífvörðum úr bandarísku leyniþjónustunni að hann hygðist ráða Donald Trump Bandaríkjaforseta af dögum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna. Maðurinn er frá Venesúela og dvaldi ólöglega í landinu.

Hagaði sér grunnsamlega í bifreið

Maðurinn heitir Ronny Yordrix Guanipa Chrinos. Hann er meðal annars sakaður um ólöglegan flutning skotvopna, vörslu óskráðra skotvopna og skotfæra, vörslu hættulegra vopna, að bera skammbyssu án leyfis og þjófnað á bifreið.

Samkvæmt ráðuneytinu veittu lífverðir því athygli að maðurinn hagaði sér grunsamlega í bifreið sinni sem stóð kyrrstæð á Constitution Avenue skammt frá Hvíta húsinu.

Þegar lífverðirnir gáfu sig á tal við manninn sagðist hann hafa heyrt raddir í höfði sér sem sögðu honum að fara til Washington og myrða forsetann.

Í ljós kom að bifreiðinni hafði verið stolið og viðurkenndi maðurinn að vopn væru í henni. Við leit fundust þrjú skotvopn, þar á meðal riffill, auk tuga skota.

Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Ekki fyrsta banartilræðið

Trump hefur ítrekað verið skotmark banatilræða frá því hann tók við embætti forseta.

Þekktast er tilræðið á kosningafundi í Butler í Pennsylvaníu í júlí 2024, þegar maður hóf skothríð af þaki nærliggjandi byggingar. Einn fundargesta lést og Trump og tveir aðrir særðust.

Í apríl síðastliðnum braust út ringulreið þegar byssumaður komst í gegnum öryggisgæslu á kvöldverði blaðamanna Hvíta hússins á Washington Hilton-hótelinu, þar sem Trump og eiginkona hans, Melania, voru viðstödd. 

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅