Áverkar eftir niðurskurðarhnífinn plástraðir

Samfélagsmiðlar íslensks stjórnmálafólks eru alltaf undir smásjá og því sem þar fer fram gert skil með reglubundnum og skemmtilegum hætti í Spursmálum. Yfirferðina má í heild sinni sjá í meðfylgjandi myndskeiði eða í rituðu máli hér að neðan.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir segist taka örugg skref í heilbrigðismálum.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir segist taka örugg skref í heilbrigðismálum. Samsett mynd/Skjáskot/Instagram/Unsplash/Louis Villasmil

Mæðgur í hrekkjavökugervi

Diljá Mist fór alla leið á hrekkjavökunni og var alveg hryllilega útlítandi. Já, eða hitt þó heldur. Hún rifjaði upp hrekkjavökugervi þeirra mæðgna síðustu ár og það verður ekki annað sagt en að metnaður sé þar einkennandi.

Öll hvað?

Simmi Dabbi á oft mjög erfitt með einfalda hluti, það er svona þessi týpíska miðaldrakarla mótþróaröskun, þið þekkið þessar týpur. En í vikunni átti hann í vandræðum með að skilja auglýsingu um Sjávarútvegsdaginn, sem reyndar var á íslensku, ólíkt mörgum öðrum, þar sem talað var um að öll væru velkomin. Öll hvað? Öll fyrirtækin? Ígulkerin? Blómin? Jólatrén? Ég sem hélt að þetta kynlausa mál væri dottið úr tísku? Misskildi sjálfa mig alveg. Eða sjálft mig eða eitthvað.

Íslenskar auglýsingar

Svo kemur Snúlli Másson og segist vilja hafa allt auglýsingaefni á Íslandi á íslensku en ég get ekki séð hvað í ósköpunum það á að hafa upp á sig ef bornir og barnfæddir Íslendingar skilja ekki einu sinni íslenskar auglýsingar. All are welcome hefði kannski bara verið skiljanlegra.

Götustelpan í góðum gír

Götustelpan Togga Gunn bauð til fjölmenns fundar í vikunni þar sem Viðreisnarfólk kom saman og reyndi að finna einhverjar leiðir til þess einmitt að eiga sér viðreisnar von í náinni framtíð. Togga stóð bein í baki á fundinum og sneri baki í almenning en það gerir hún ekki við sitt allra besta fólk. Ooo nei. Sjáið hvað hún er heimaglöð. Ólafi Ragnari Grímssyni var sko ekki boðið í þess veislu. 

Vatnsgreiddur og vel til hafður

Sjálfukóngurinn mætti vatnsgreiddur og vel til hafður í Viðreisnarstemmarann og fangaði hann fjölmennið á filmu - 200 manns takk fyrir túkall.

Kenndi Njalla hvernig á að haga sér á Norðurlandaráðsþingi

Bryndís Haralds fór á sitt fimmhundraðasta Norðurlandaráðsþing á dögunum og naut sín í ræmur eins og myndaveislan sem hún deildi með okkur sýnir. Hún kenndi kollega sínum hvernig á að gera þetta en Njalli var á sínu fyrsta Norðurlandaráðsþingi. Jesús minn hvað þetta er óþjált orð. Nordic Council parliament hljómar miklu betur.

Kryddstrákarnir hennar Kristrúnar trylltu lýðinn

Árshátíð Stjórnarráðsins fór fram um síðustu helgi og var ekkert eðlilega mikil stuð, allir að fá sér og eitthvað að skandalísera bara svona eins og gengur og gerist. Kryddstrákarnir hennar Kristrúnar trylltu lýðinn og veittu skemmtanglöðu valkyrjunum smá viðnám. Gott að toga þær aðeins niður á jörðina. Það geta fleiri sungið í míku og dillað bossum.

Jafnaðarmannastraumarnir skiluðu sér til Ameríku

Dagga Konna okkar allra uppáhalds friðelskandi kratakona með meiru minntist þess þegar hún fór til Ameríku að sinna kosningaeftirliti í forsetakosningunum fyrir tveimur árum í tilefni þess að kosið var þar í landi fyrr í vikunni um valdahlutföll komandi þings. Jafnaðarmannastraumarnir frá henni skiluðu sér svo sannarlega alla leið yfir hafið. Texas orðið blátt.

Hamfarahræðslubæklingur inn á öll heimili

Obba koma víða við í vikunni. Alveg tjúll að gera hjá henni alltaf. Í öllu nema að mæta í atkvæðagreiðslur niður á þingi en það er nú önnur saga. Á dögunum kynnti hún nýja áætlun í löggæslumálum og bar út geggjaðan hamfarahræðslubækling inn á öll heimili landsins en mér er nú alveg drull um þetta allt saman. Langaði bara til að sýna ykkur þessa góðu mynd af henni. Kjútípetútí much eða?

Áverkar niðurskurðarhnífsins

Halló hjúkka! Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur segist vera að taka örugg skref í heilbrigðismálum, fækka biðlistum og stytta bið á bráðamóttökunni og svona. Eru ekki allir farnir að finna fyrir því? Nú, ekki? Ó ókei skrítið. Kristrún er nefnilega sjálf komin í bráðahjúkkugallann að hlúa að öllum áverkunum sem hlotist hafa af niðurskurðarhnífnum. Plástur og þetta og plástur á hitt.

Gulli staddur í Groundhog day 

Stafræn nýting er eitthvað sem Sjálfstæðisflokkurinn er nauðbeygður til að tileinka sér og er farinn að nýta endurtekið efni því það gerist nákvæmlega ekkert dögunum saman þarna í leikhúsinu við Austurvöll - allir bara allt eitthvað í útlöndum.

Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að nálgast nýjasta þátt Spursmála í heild sinni:

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅